Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 103
103
6515. í4/9
6516. Vio
6517. »/M
6518. «/i o
á göflum (— aðra hölduna vantar nú), með vandaðri
járnskrá og lykli og járnlömum innan á loki og utan á
bakhlið, alt í skábogastíl. Handraði er í hægri enda;
vantar lok á hann nú. Að utan er kistan með brún-
leitri steinmálningu (marmaramálningu) og á framhlið
eru málaðir grænir kranzar með rauðum böndum og í
öðrum þeirra er ártalið 1709, en hinum upphafsstafirn-
ir M. R. D. — Vestan úr Dalasýslu. — Utlend að upp-
runa.
Selárdalskirkja: Fjalir,29 að tölu, úr furu, með gagn-
skornu verki, allar nær eins, 1. 42—43 cm., br. 16—20
cm., rauðmálaðar; sennilega úr grádum um altari; sum-
ar brotnar sundur.1)
Vínstaup úr silfri, kringlótt, gylt alt að innan og að
utan um barmana, með 3 kúlufótum (þverm. 1,3 cm.)
undir, og steyptum eyrum kveiktum á beggja vegna.
Þverm. neðst 3,8 cm., uppi undir börmum 4,7 cm., um
barmana, sem flá dálítið, 5,2 cm., hæð sjálfs staupsins
(auk fótanna) 4,4 cm. (dýptin 4,3 cm ). Beggja vegna
eru grafnar greinar og eru annars vegar á milli þeirra
upphafsstafir fyrv. eiganda, Péturs Péturssonar (P P S)
á Hríshóli í Reykhólasveit, langafa Gests Pálssonar
skálds og seljandans (Péturs Péturssonar á Þingeyri við
Dýrafjörð); en hins vegar eru upphafsstafir konu Pét-
urs þessa á Hríshóli, K P D. Neðan á botninn er tví-
settur stimpill smiðsins, mjög ógreinilegur (S F?), og
ártalið 1807. Staupið er án efa íslenzkt og allvel
smíðað. Þyngd 44 gr.
Abreiða krossofln, 161 cm. að lengd og 117,5 cm. að
breidd. Uppdrátturinn í þessari ábreiðu er hinn sami
og í ábreiðunni nr. 4569, stór hrísla eða blóm, sem
stendur í jurtakeri á öðrum endanum og breiðist um
alla ábreiðuna, blóm og blöð með miklu litaskrauti, en
grunnurinn er dökkblár Við efri enda eru upphafs-
stafirnir A A C V eins og á nr. 4569 en ártalið 1839
(1837 á nr. 4569) við neðri enda. — Att hefir síðast frú
Steinunn Sivertsen, nú á Kalmanstjörn.
Spjótsoddur forn, 1. 42 cm. nú, en mjög mikið vantar
ofan af falnum, nær alt það er verið hefir utan um
skaft-endann, varla minna en 8 cm. Það sem eftir er
‘) Um leið kom frá kirkjunni yfirskjöldurinn af nr. 6080.