Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 106
106
Heðsti kaflinn 35 cm. að lengd, með 8 leturlínum yfir
þveran steininn. Áletrunin er með gotnesku smáletri,
stafhæð 3—4 cm. Hún er orðin mjög eydd og torlæsi-
leg. I leturbekknum og þverbandinu efst virðast standa
spakmæli (eða ritningargrein?), er að eins þetta verður
lesið af að svo stöddu: hans : vinstri : hond \ Uggur(f) •
--------: | — — — :-----------— : og | hans : hœgri i
ho | nd : fadmar i mig | Stafirnir fyrir ofan myndina
eru máske framhald þessarar setningar. Línurnar hægra
megin við myndina eru svo, að því er séð verður:
hier • hvilir i su i sœla ': g | uds i astmeyia i oluf(a f)\.
Framhaldið er hins vegar við myndina: hakonar •
dotter i hvor | ia i herrann i burtkall(af) \ Stafirnir fyrir
neðan myndina eru máske endirinn af þessu síðasta
orði (ade?), þeir eru ógreinilegir. Fyrir neðan mið-
kaflann er svo framhaldið: a i XX i are i syns \ alld-
urs i ANNo | 1658 þann 19 AP. | enn i þó • hinn i ri |
ettlati i deyi i of | snemma i þa \ er i hann 5 þo i | i :
hvilld l SAP4: | — Hákon faðir stúlkunnar hefir lík-
lega verið Hákon Þorsteinsson Magnússonar frá Þykkva-
bæ í Álftaveri, steinninn fanst í bænum þar; þaðan
sendi Daníel Bruun hann til Þjóðmenjasafnsins 1899.
Hann er nú brotinn sundur í miðju og neðri helming-
urinn aftur í tvent.
6524. 4/u Næla, steypt úr silfri, gagnskorið verk, forn; nokkurn
veginn ferhyrnd, 4X3,6 cm.; hún er með kynjadýri, er
hefir framfætur og 2 hala, og vefjast um það ormar.
Mjög lík nr. 1593, sem er úr bronzi, gylt, og er sú
miklu frumlegri og eðlilegri. Þær munu vera frá síðari
hluta 11. aldar. Líkar nælur hafa fundist í Noregi,
Svíþjóð og Danmörku og eru á söfnum þar1). — Fundin
i Tröllaskógi i Rangárvallasýslu. — Þornið er nú af.
6525. — Beltisparastokkur, steyptur úr kopar, 1. 7 cm., br. 2,2
cm. Á miðju standandi barnsmynd í súlnahliði, og
beggja vegna við engilhöfuð raeð vængjum; upphleypt
verk í skábogastíl.
6526. 5/u lnnsigli úr kopar, með rendu skafti úr bæki. Hæð 7,3
cm. Signetsflöturinn sporbaugsmyndaður, hæð 2,8 cm.,
br. 2,2 cm. Laglega grafið verk: Sporbaugsmyndaður
*) Sbr. t. d. Montelius, Kulturgesch. Schwedens, 494. mynd, sem er mjög svip-
uð nr. 1593 i Þjóðmenjasafninu.