Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Page 130

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Page 130
132 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS ráð sem fengin voru úr náttúrunni. Þetta er nú ekki allskostar rétt, enda þótt vitnað sé í Sýslulýsingar frá því um miðja 18. öld, því að allt fram á þennan dag hafa verið til grasalæknar víða um land, og eru hinir frægustu þeirra lík- lega af tiltekinni ætt í Vesturskaftafellssýslu. En þau hafa líklega fengist meir við lækningar á fólki. Þá vil ég ekki fallast á það með öllu, að ráð Jesú Krists, sem getið er um á bls. 159, þurfi að hafa verið bábilja. En svo segir í Jóhannesarguðspjalli: „Þá er hann hafði þetta sagt, hrækti hann á jörðina, gjörði leðju úr hrákanum og reið leðjunni á auga hans.“ Er. nú ekki hugsanlegt, að það hafi verið einhver efni í jarðveginum, sem komið gátu að haldi? Á bls. 310 segir: „Þó að ýmsir prestar og menntaðir leikmenn hafi þýtt sér- kennileg dýralækningaráð úr erlendum ritum á íslensku, er enginn vitnisburður um, að bændur hafi haft handrit þeirra til leiðbeiningar um læknisráð fyrir iiross.“ Við þetta vildi ég gera þá athugasemd, að þögn heimilda sannar aldrei neitt en það er a.m.k. spurning, hversvegna þó er þetta mikið til af uppskriftum þessara þýðinga, ef þær hafa ekki verið notaðar. Þá er aftur komið að atriðum, þar sem vikið er að frumtrúarbrögðum og þjóðtrú eða reynslu. Þar segir t.d. svo á bls. 1: „Fræðimenn cru sammála um, að dýralækningafræði Norðurálfubúa hafi átt upptök sín í Egyptalandi og breiðst út baðan til Vestur-Asíu og Grikklands. Þótt blóðtakan ætti án efa rætur í frumtrúarbrögðum og göldrum, varð aðferðin smám saman snar þáttur hinnar grísku læknis- og dýralækningafræði. Um það bil 500—450 f.Kr. hafnaði Hippokrates læknir trúnni um yfirnáttúrlegar or- sakir sjúkdóma í mönnum og skepnum og tók að leita orsaka þeirra í sjálfri náttúrunni." Nú vil ég varpa fram þeirri spurningu, hvað eru frumtrúarbrögð? Er það upphaflega nokkuð annað en viðleitni mannsins til að gera sér náttúruna undir- gefna eða laga sig að henni? Getur ekki verið, að í þessum læknisráðum Egypta hafi verið fólgin einhver reynsla? Og svo er það önnur staðhæfing í þessari klausu, sem ég vil leyfa mér að draga í efa, þótt það nálgist kannski helgispjöll. En það er þessi sífelldi söngur, sem kveðið hefur við síðastliðin 2000 ár, um að nánast öll okkar menn- ing hér á norðurslóðum hafi borist okkur frá miðjarðarhafslöndum og fyrst og fremst frá Grikklandi og Róm. Það er alkunna, að stórveldi reyna ekki aðeins að þröngva sinni menningu uppá smærri þjóðir, heldur reyna þau líka að láta líta svo út í opinberum heimildum sem allt jákvætt í menningu undirþjóðarinnar sé frá stórveldinu komið. Grikkland var á sínum tíma stórveldi, Róm var stórveldi og katólska kirkjan var stói-veldi. En er nú ekki hugsanlegt, að við t.d. hér á Norðurlöndum höfum haft gáfur og hæfileika til að finna eitthvað út af eigin rammleik. Og jafnvel að við vær- um ekkert verr stödd menningarlega, þótt við hefðum aldrei orðið fyrir þessum straumum að sunnan. Út af fyrir sig er ég mjög efagjam á kenningar um menningarstrauma og erlendar fyrinnyndir. Ég álít fullt eins líklegt, að áþekk fyrirbæri geti sprottið upp óháð hvert öðru á ýmsum stöðum, einungis ef nátt- úrlegar ytri aðstæður eru svipaðar. A.m.k. tel ég ekki rétt að gleypa endalaust við þessum staðhæfingum einsog heilögum sannleik án þess að hrukka a.m.k. ennið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.