Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Síða 25
97
æxlunarfært eða fiskfæðandi hrogn þarf meira, nefni-
lega eggjablómið og hinn veiki skurmur utanum það.
Fóstrið þarf ekki að eins eggjablómsins við, meðan það
er falið í hrognkorninu, heldur og margar vikur eptir
að það hefir brotizt úr skurminum, með því að það
er eggjabJómsefni, sem er í kviðpoka þeim, er fiskur-
inn ber við sig hina fyrstu æfidaga sína, eins og síð-
ar mun verða skýrt frá. Laxeggin eða hrognkornin
eru fremur stór, og því ekki mörg í samanburði við
stærð móðurinnar; þannig hefir lax vanalega um iooo
egg í hrogni sínu fyrir hvert pund, er hann vegur,
en þorskur full-roskinn 3—4 milíónir alls.
Liki menn nú aptur saman svilunum úr litlum lax-
unga 5—6 þumlunga á lengd, 3 missira að aldri, og sem
aldrei hefir farið til sjávar, en er orðinn frumvaxta, eða
hefir frjóvgunarfær svil, við hrognin úr hrygnu, sem
einnig er gotfær, en sem til þess að ná þessu, hefir
orðið að fara til sjávar, og á 8—12 vikum er orðin
20 þuml. á lengd, þá vega hrogn hennar yfir þúsund
sinnum meira en svilin, sem þó hafa svo mikla svila-
mjólk, að hún gæti verið nægileg til þess að frjóvga
alt hrognið. Einn dropi af svilamjólkinni nægir til
þess aðfrjóvga 2 merkur hrogna, sem vega 14,400 sinn-
um meira. Ef menn horfa í stækkunargler, geta menn
í svo litlum dropa af svilunum, sem hangið getur á
nálaroddi, séð ótölulegan grúa af sæðisöngum. Einn
slíkur dropi inniheldur ef til vill milíón af sæðisöng-
um, og einn þeirra mundi vera nægilegur til þess að
frjóvga eitt hrognkorn. Af þessu er auðsætt, hvernig
á því stendur, að hinir litlu svilfiskar verða fyr æxlunar-
færir en hrygnan.
þegar laxinn hefir tekið sér dvöl í fljótinu, tekur
hann til sín mjög litla eða minni fæðu en í sjónum.
Hann leggur ekki til holdanna, en neitar sér þó ekki
um fæðu, sem sjá má af því, að það má ginna hann