Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Page 79
og þola' siður hristing eða að rekast á. Nýfrjóvguð
egg má flytja í mosa, votum klútum, eða ílátum með
vatni í, og það all-langa leið, en það verður að gjörast
innan 6. dags eptir frjóvgunina. En hvorki eggin eða
eggjalögin mega koma saman, og eitthvað mjúkt verð-
ur að vera á milli, til þess að þau ekki verði fyrir
hristingi. það verður að hafa tvöfaldar umbúðir, til
þess að hitinn séjafn og breytist ekki snögglega. Of
mikil hristing eða hitabreyting er skaðleg. Breytist
hitinn snögglega um 8° R., deyja öll eggin. Eptir
fyrstu 5 dagana má ekki hreifa eggin til flutnings,
fyr en þau eru svo þroskuð, að farið er að móta fyrir
augum fisksins, og þau orðin sýnileg. Séu eggin flutt
á þeim tíma og þess gætt, að frost ekki komi að
þeim, og sé að öllu farið á réttan hátt, er áreiðanlegt,
að þau öll geta komizt óskemd, þó um marga daga
eða hálfsmánaðar flutning sé að gjöra. Til þess að
verja eggin frosti, er bezt að taka talsvert stærra ílát
eða öskju; leggja í botninn á því þurran mosa, um 2
þumlunga á þykt, láta svo öskjuna þar niður í, og
troða svo mosa jafnþykt utan með og ofan á. Ef
eggin eru flutt í hita, er bezt að mosinn í ytri umbúð-
um sé deigur.
Séu nú ekki útklakningstilfæringar á þeim stað,
sem fiskarnir veiðast og hrognin eru frjóvguð, til þess
að klekja fiskunum út, þangað til að augun fara að
sjást, þá neyðast menn reyndar til þess að senda hrogn-
in strax eptir frjóvgunina, en við það tapast, ef til vill,
mikið, og verður mikil fyrirhöfn á því, að aðskilja egg
þau, sem sýna sig ófrjó, og eins að skilja siðar frá
þau egg, sem að þar á eptir fá gljáa á sig, og því
eru ónýt. En verði ekki komizt hjá að senda hrogn-
in, áður en sá hentasti tími kemur til þess, er bezt að
hrognin séu lögð niður til flutnings strax við frjóvgun-
arkerið. Sé nú vegurinn ekki lengri en dagleið fyrir