Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Síða 103
75
inga, tungu vora, þjóðerni vort, og veg til sjálfsfor-
ræðis, flest eptir hinn ágæta mann vorn, Jón Sigurðs-
sonh þau hafa stutt mjög að því, að koma þjóðleg-
um anda inn hjá íslendingum, og þeim öðrum fremur
er það að þakka, að íslendingar nú komu eindregnar
fram sem þjóð. Áður kom að eins fáum íslendingum
í hug, að þeir hefðu í raun og veru sjálfstætt þjóðerni
eða heimild til að halda rétti þess fram. Alt hugðu
þeir að sér væri gefið af náð yfirstjórnarinnar, og fá-
um hafði komið til hugar, að þeir ættu rétt á meiru,
eða hefðu leyfi til að biðja um betri kjör eða mættu
búast við að fá þau. Meðan slíkur aldarandi grúfði
yfir mönnum eins og þoka yfir láglendi, gat ekkert
mentalíf glæðzt, en þessi þoka rofnaði hægt og hægt
og greiddist sundur, og mentunarsólin fór alt af að
ná sér betur og betur, menn fóru að vakna hvað af
hverju, og fóru jafnvel að starfa við eggjanir þær, er
voru brýndar fyrir mönnum í Fclagsritunum. Auk
þessara pólitisku greina voru þar einnig fræðandi og
skemtandi ritgjörðir, ferðasögur, ritgjörðir, er lúta að
náttúrufræði, fornfræði, búnaði o. fl., allar ágætlega
samdar. Sömuleiðis voru og i þeim árlega kvæði
þjóðskálda vorra. Benedicts Gröndals og Steingríms
Thorsteinsonar o. fl., og glæddu þau fegurðarlif þjóð-
1) Jón Sigurðsson er fæddur 11. júní 1811, lærði heima og
útskr. af Gunnlaugi Oddssyni 1829; var síðan við verzlun 1
ár og aðstoðarmaður Steingríms biskups 3 ár. Hann kom
til háskólans 1833, og stundaði fyrst málfræði, enn fór skjótt
að snúast við málefnum Islands ytra. 1835 varð hann, sti-
pendiarius Arnam., og átti síðan mikinn þátt í útgáfum Ama
Magnússonar deildarinnar og fornfræðafélagsins. 1851 varð
hann forseti bókmentafél. og til dauðadags. Hann hafði ýms
embætti við skjalasöfn í Höfn. Hann var þingmaður og for-
seti á flestum þingum. 1848 varð hann skrifari A.M. nefnd-
arinnar. R. af Dbr. 1859. Hann var og forseti þjóðvina-
félagsins. Dó í Höfn 7. des. 1879. (Æfiágrip hans er að
finna í »Andvara, 6. ár« 1880, eptir Eirík Briem).