Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Page 121
173
Nýlega (1879) hefir hann og ritað stutta sögu, og er
hún ágætlega af hendi leyst. þorkell prestur Bjarna-
son (f. 1839) hefir ritað „Siðbótarsögu Íslands'1 og „A-
grip af sö'gu ístands“, og er hin fyrri allvel ritin, en
hin síðari stutt og ófullkomin, svo að enn þá má svo
að orði kveða, að vér eigum enga sögu ættjarðar vorr-
ar sem allar aðrar þjóðir. Til sagnfræðilegra vísinda
hafa og hjálpað fornfrœðafelagið, er gefið hefir út
nokkrar fornsögur vorar, og bókmentafelagið, sem hefir
gefið út „Safn til sögu íslands“, „Biskupasögnr“ o. fl.
jón Arnason1 bókavörður hefir ritað „Lúthers-“ og
„Karlamagnúsarsögur“, báðar vel ritnar, og svo safn-
að og gefið út „þjóðsögur og œfintýri“ vor, mikið safn
og merkilegt. þær eru viðfrægar, og þegar út lagðar
á önnur mál (t. d. ensku, dönsku); þykja þær jafnvel
bera af hinum frægu þjóðsagnasöfnum þeirra Grimms
og Asbjörnsens, því að þeir hafa sagt sögurnar sjdlfir,
og gefið þeim þann búning ogblæ, sem þær hafa, en
Jón Árnason hefir tekið sínar þjóðsögur óbreyttar af
vörum þjóðarinnar, framsettar með hinum einkennilega
blæ, er svo glögt einkennir þjóðsögur og þjóðkvæði.
fessum blæ hefir hann haldið og látið sögurnar koma
fram, eins og þær voru í fyrstu sagðar. Fyrir það
hefir safn hans orðið svo frægt sem það er orðið.— í
landafræði hefir ekkert verið frumritað, nema „landa-
skipunarfrœði Oddsens2, ágæt bók á sínum tíma; engi
1) Jón Ámason er fæddur 17. ág. 1819 ; útskr. úr Bessa-
staðaskóla 1843, og var síðan um tíma tímakennari við hinn
lærða skóla. 1848 varð hann bókavörður við stiptsbókasafn-
ið og Reykjavíkurdeild bókmentafélagsins; hann var umsjón-
armaður lærða skólans 1867—79. (»íslenzkar þjóðsögur og
æfintýri# 2 bindi. Leipzig 1862—1865).
2) Gunnluujur Oddsen er fæddur 9. maí 1788, útskr. úr
Bessastaðaski' !a 1809 og var þá um tíma skrifari hjá Casten-
skjold stiptamtmanni; kom á háskólann 1813. 1817 varð
hann kennari í ritfegurð við sjóforingjaskólann, 1821 stip.