Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Síða 5

Eimreiðin - 01.09.1901, Síða 5
síðustu lög, en í þetta skifti haföi áhuginti fyrir þessari nýju stöðu borið hærri hlut. Nú rankaði hann fyrst við því, að hann var mat- þurfi. »Já, ég þyrfti líka eitthvað að nærast á. Pað er svekkjandi að sitja á fundum og halda langar ræður um þungskilin málefni.« »í*ú getur étið graut — hann er þarna í pottinum — og mjólk er niðri í kjallara, ef þú vilt. — — Það hafa víst verið heyrandi ræður, sem þú fluttir á fundinum! Pér hefði verið sæmra að sitja heima og dytta í skörðin, sem uxinn hans Gríms er tvívegis búinn að brjóta í girðinguna.« »Grímur er vænn maður,« sagði Jón og stóð sig sem hetja, »og uxinn hans skal friðhelgur, hvar sem hann finst í minni land- areign. Hann flutti í dag langa og vel hugsaða ræðu á fundinum, um að ég væri kosinn sem járnbrautarnefnd til að fara og fá pen- inga hjá stjórninni í Winnipeg, og nú er ég nefnd og fer sem nefnd.« »Kjósa þig fyrir járnbrautarnefnd! Já, guð veri fjandanum náðugur! I flestu þykir mér þið ætla að fara að rázkast. Eg held þér og ykkur væri sæmra að hirða betur um konuna og kýrnar, en þið gerið, þær kynnu þá að gera dálítið betur gagn, en að vera að rázkast í járnbraut og öðru, sem þið skiljið ekkert í.« þetta féll Jóni illa að heyra. Honum fanst það ekki eiga við, að tala þannig um jafnmikilsvert mál. xEað eru nú þín orð, Ás- dís mín,« sagði hann, »og mér bregður ekki við að heyra slíkt; en það mun sannast á mér, það sem í’orsteinn heitinn á Yxnabakka sagði, að enginn er spámaður metinn í sínu föðurlandi. Á neyð- arinnar tímum kjósa þjóðirnar sína vitrustu og beztu menn til að reka erindi sín. Var ekki Jón Sigurðsson kosinn til að tala máli þjóðarinnar við kónginn, líkt eins og ég er nú? Nú hef ég nefni- lega verið kosinn nefnd, og ég fer og segi við stjórnina: ’Okkur þarna norður frá vantar járnbraut’, segi ég. ’Við vinnum baki brotnu.« — — »Svei attan! þú skyldir þá nenna að færa mér vatn í fötu eða höggva spýtu í eldinn, nema ég segi þér það. — Ætlarðu annars að gera við girðinguna, eða á uxinn að éta upp hvert strá úr túninu?* Jón gat ekki fengið af sér að fara að gera það. »Nú kalla að önnur háleitari störf en að gera við girðingar og reka út uxa. Eg á að

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.