Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Síða 12

Eimreiðin - 01.09.1901, Síða 12
172 Peir hurfu þar inn um stórar dyr, en Jón stóð eftir á táinu. Honum varö starsýnt á bæjarráðhúsið, þar sem það blasti við and- spænis honum. Hann var að virða fyrir sér turnana upp af því, þegar hann alt í einu heyrði háan og hvellan klukknahljóm skamt frá sér. »Hver þremillinn,« sagði hann og hrökk saman. »Eru þeir að hringja til messu núna?« Hann leit upp í loftið til að sjá, hvað tíma liði, og var orðinn áttaviltur. »Sólin í hánorðri,« sagði hann. »Alt er það öfugt hér frá því, sem er á Strympu.« Svo fór hann að íhuga, hvaða dagur var. Pað var föstu- dagur, svo ekki gat guðsþjónusta verið þann dag. Eað hlaut að vera eitthvað annað. Klukknahringitigin hélt áfram, og hann fór að skygnast betur eftir, hvaðan hún kæmi. Vestur undan ráðhúsinu sá hann lága og fremur kumbaldalega byggingu með einum litlum turni. Paðan kom hljóðið. Nú fór fyrir honum eins og fyrir Móse, þegar hann sá þyrnirunnann loga, honum lék forvitni á að skoða þetta betur. Og af því byggingin var örskamt þaðan, gekk hann yfir um strætið. Þangaö var heldur ekki amalegt að koma. Umhverfis bygg- inguna og langt út frá henni stóðu raðir af hestavögnum, flestir eða allir hlaðnir með mat. I sumum vóru jarðepli, rófur, næpur og ótal tegundir af garðávöxtum, sem hann bar engin kensl á, þrátt fyrir 17 ára dvöl sína í Manitoba. Á öðrum vögnum var ostur og smjör, og á sumum vóru heil sauðaföll eða heilir svínaskrokkar. Hér og þar vóru menn í óða önn að taka af vögnunum og bera inn, og aðrir komu út með ýmislegt matarkyns og báru burt. Pað sá Jón, að margar dyr vóru á húsinu, og af því fólkstraum- urinn var alt af út og inn, var honum forvitni á að vita, hvað fram færi innan veggja, og gekk því inn. Og sú sjón, sem hann sá, þegar inn kom, hafði þau áhrif á hann, að hann saup hveljur. Matur, ekkert nema matur uppi og niðri og á allar hliðar. Inn eftir endilangri byggingunni lá breiður gangur, og í gegnum aðrar dyr andspænis sá hann út á strætið hinumegin. Á báðar liendur vóru borð úr hvítum marmara, og á þau var haugað þessum líka litlu ósköpum af alls konar mat og kræsingum. Nautakjöt, sauða- kjöt, svínakjöt, kálfakjöt, lambakjöt, langar, alifuglar, jarðepli, smjör, næpur, rófur, agúrkur, grasker eins stór og nautshöfuð, alt þetta var í hrúgum, hvar sem litið var, Og ekki nóg með það, heldur héngu heilir og hálfir skrokkarnir af nautum, sauðum og svínum með fram

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.