Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 13

Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 13
173 ganginum alla leið gegnum húsið. Og alt af var fólk að koma og fara, sumir að kaupa og sumir að selja. En bak við marmara- borðin vóru nokkrir menn, sem helzt virtust afhenda og taka á móti, allir klæddir í snjóhvít föt frá hvirfli til ilja. Slíka sjón hafði Jón ekki séð á æfi sinni. Pessi fádæmi af bezta mat á allar hliðar og þessar hvítklæddu, saklausu verur, sem liðu eins og englar fram og aftur. Honum fanst, hann hlyti að vera kominn í himnaríki. Og af aðdáun yfir öllu þessu gætti hann sín ekki og rak höfuðið í stórt sauðarkrof, sem hékk á snaga við ganginn. Krofið hristist, en hékk þó uppi, og einn af þeim hvítklæddu hrópaði: ■»God damn*, sem náttúrlega kom Jóni ekkert við. Hann fór að aðgæta þenna sauðarskrokk betur. Pað var ætur biti; ekki þurfti að efast um það. Slík þó líka síða! Vissir tveir þumlungar á þykt eða meira. Jón var fjárbóndi bæði aö fornu og nýju, en síðan hann fór frá Islandi, hafði hann ekki séö slíkt krof, að und- anskildu krofinu af kollótta hrútnum, sem hann skar haustið áður. Pað var skepna, sem vert er að minnast á. Kominn af höfð- ingjum langt fram í ættir; Ásdís gat rakið ætt hans í beinan karllegg upp til þess kollótta, sem Gestur í Haga keypti og fékk fyrstu verðlaun á sýningu. Hann átti líka ekki amalegt í upp- vextinum, hrúturinn sá, því Ásdís lét hann ganga í túninu og gaf honurn mjólk og mat, eins og hann vildi. Hann lifði heiðarlegu lífi, og sómasamlega skildi hann við heiminn, þegar hann loksins, gamall og saddur lífdaga, fór héðan til sælli bústaða. Skrokkur- inn vó hundrað og þrjú pund, og það á danska vog, og mörinn stóð vel veginn fjórðung, og nýrnamörinn þó ekki talinn með, því Jón lét hann fylgja skrokknum í kaupbæti, því ekki var því láni að fagna, að þau hjónin mættu éta hann sjálf. Hann fór í sama hræsvelginn og allar aðrar vörur þeirra, í kaupstaðinn, fimm cent pundið móti uppsprengdum vörum, kaffið sex pund á dollar og tóbakið tíu cent platan, og aðrar nauðsynjavörur eftir því. Svo fór Jón að hugsa um, hve mikið kaupmaðurinn mundi hafa grætt á hrútnum. Talsvert hlaut það að hafa verið, því það var ekki ein- leikið, hve mikill uppgangur var á verzlan hans í seinni tíð. En þessar hugleiðingar hans fengu skjótan enda við að sjá félaga sinn ganga inn í markaðinn. Pegar hann kom auga á Jón, gekk hann raldeiðis til hans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.