Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Page 38

Eimreiðin - 01.09.1901, Page 38
198 þar stendur. En að þetta sé takmarkið, sem að ofan er greint, það íinst mér, að allir ættu að geta orðið á eitt sáttir um. þessar nýju kenningar hafa þó orðið söngkennurum og öðrum að ágreiningsefni, en svo er um allar nýjungar, sem koma í bága við eldri skoðanir. Sumir eru svo fastheldnir við það, sem gam- alt er, að þeir fallast aldrei á nokkra nýbreytni, þó að hún sé bygð á sólskærum sannleika. Aðrir leggja sleggjudóma á mál, sem þeir bera ekkert skynbragð á, og dást svo að sinni eigin skynsemi. En aðrir ganga á hólm við mennina en ekki málefnin o. s. frv. Hins vegar spillir það og oft fyrir nýjungunum, að tals- menn þeirra ganga lengra, en hæfilegt er. Og vera má, að hér hafi það átt nokkurn þátt í ágreiningnum. Pað er enginn hægðarleikur, að kenna mönnum söng með bók- legri fræðslu svo, að verulegt gagn sé að. Mér er næst að ætla, að það sé ekki vinnandi vegur. Sá, sem ætlaði sér að læra söng án annarrar tilsagnar, mundi þurfa um margt að spyrja, og svo margt vafasamt mundi hann reka sig á, að hann yrði ráðþrota. Þar við bætist, að það er erfitt að heyra gallana á sínum eigin hljóðum, því að gamall og langur óvani sljóvgar tilfinningu og smekk og gerir það að verkum, að menn taka ef til vill ekkert eftir því, þó að eitthvað, jafnvel verulegt, sé að. Smekkurinn fyrir réttri tónsköpun og fögrum hreim eykst við tilsögn góðs kennara; framan af er hann meira eða minna ófullkominn hjá flest- um eða öllum. Pannig má vera, að menn syngi flátt eða fram í nefið eða með kverkunum eða ólíkum hljómblæ á háum og djúp- um tónum, þó að þeir veiti því sjálfir enga eftirtekt. Pað þarf ekki mikið að vera til þess, að verra sé en ekki. Petta lagfærir góður kennari; á annan veg er það ekki hægt. Eg er þó Holger Wiehe þakklátur fyrir það, að hann hefir tekið sér fyrir hendur að rita um þetta efni, því að margt segir hann, sem gæti lcomið mönnum að góðum notum, ef þeir hefðu vilja á að breyta eftir. Eg ætla að lokum að leyfa mér að gera stuttar athugasemdir við.það, sem mér finst athugavert í grein hans og ég hefi rekið mig á. Höf. segir á bls. 58: »Röddin (bæði manna og dýra) er hljóðfæri« og neðst á sömu bls. líkir hann henni við »blástur- hlj óðfæri«. Petta er hugsunarrangt. Röddin sjálf (hljóðið) er ekki hljóðfæri. fað, sem myndar röddina (raddfærin), mætti kalla

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.