Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Page 47

Eimreiðin - 01.09.1901, Page 47
207 og stjórnarstörfin of margvísleg fyrir þá fáu embættismenn, er áður vóru; til þess því að fá nógu mannmarga stjórn og um leið koma festu á gamlar venjur og lög, eru Decemviri settir. Líklegast er, að þeir hafi aldrei til Grikklands komið, þó grískir rhetórar síðar héldu því fram, samkvæmt þeirri aðalskoðun sinni, að Rómverjar hefðu lánað frá Grikklandi alt, sem gott var og nýtilegt hjá þeim. Nú fór svo, að Decemviri misbrúkuðu vald sitt, og gamla stjórnin komst á. En menn finna aftur, að hún er ónóg. Þá eru kosnir síðar »hermannaforingjar með ræðismannsvaldi«, og gengur allvel. En loks verður þó úr, að menn breyta ræðismannsvaldinu, stofna dómstjóraembættið og auka. síðar við öðrum embættum, eftir því sem þörf var á. Annars er ekki alveg nákvæmt það, sem sagt er um dómstjórana. »Homines novi« bls. 123 þýðir varla »menn af lágum stigum«, heldur menn afþeim ættum (enda þótt göfgar væru), þar sem enginn áður hafði orðið aedilis eða náð í æðra embætti (»kúrúlskt embætti«). Efst á næstu bls. stendur, að félagslíf Rómverja hafi að því leyti verið óeðlilegt, »að ekki var nógu hægt að afla sér fjár né valda með iðnaði eða friðsamlegri atvinnu«. En að öllum líkindum var það þó auðveldara þar, heldur en í nokkru ríki fyr eða síðar, þangað til nú á síðustu öldum. Það eru ótal dæmi til þess, einkum á keisaratímanum, að menn af lágum stigum og blá- snauðir vinna sér auð og völd með »friðsamlegri atvinnu«. Neðst á sömu bls. er talað um persónulega borgararéttinn (»civitas sine suffragio«) og hann talinn sem mikil hlunnindi; hér finst mér sem Madvig hafi rétt að mæla, þar sem hann (Den rom. Stats Forfatning og Forvaltning I, bls. 33—41), heldur fram, að civitas sine suffragio hafi verið hér um bil það harðasta, sem þá gat hent, er á vald Rómverja gengu, því hlunnindin vóru lítil eða engin, en kvaðirnar miklar. Bls. T26 þarf að segja frá, hyað »jus Latinum« er; það er skýrt sem hin »æðstu persónulegu réttindi« en það er mjög ónákvæmt eins og það, sem sagt er um municipia rétt á eftir. En auðvitað er það hinn mesti vandi í stuttri bók, að segja ljóst frá, en þó svo að nægi. Bls. 128 standa orðin: »hin lýðvaldslega þjóðsamkoma*, sem ég vona að sé prentvilla fyrir »alþingi« eða eitthvað þvílíkt. Bls. 135 er sagt, að Varró hafi ekki fengið fleiri heri til forustu eftir að hann beið ósigur við Cannæ. Þetta er ekki rétt; Varró stjórnaði her í mörg ár eftir það; árið 212 er sagt, að hann hafi fengið framlengd hervöld sín um öll árin, sem þá vóru liðin frá orustunni við Cannæ (sjá Livíus XXV, 6), og síðar er hann sæmdur ýmsum heiðursstörfum (Liv. XXIII, 32 sýnir, að hann stýrði her 215; sbr. enn fremur Liv. XXX, 26; XXXI, 11; XXXI, 49). Varró hefir vafalaust verið með duglegri mönnum, er Rómveijar áttu þá á að skipa, en gæfumaður yar hann ekki að sama skapi. Bls. 139 er orðið »fjandgranni« sem ég man ekki eftir, að áður hafi sést á ís- lenzku; orðið er ágætt og vert þess að halda því á lofti. Þar sem sagt er frá skoðunum Catós um Karþagó, þarf að skýra frá því, hvernig á þeim stóð, betur en gjört er. Verzlunarpólitík Rómveija er ef til vill flestu merkilegri í sögu þeirra1. Bls. 144 er aftur blandað saman 1 Það er ekki rétt, að Cató haíi ákært sjálfur Scipiónana; það gerði M. Naevius og nokkrir aðrir, en vera má, að Cató hafi staðið á bak við.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.