Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Page 48

Eimreiðin - 01.09.1901, Page 48
208 Circus og Amphiteatruin, sem eru allólík. Bls. 146 er talað um riddaraua sem nýjan flokk. Það er þó vafasamt, hvort svo má kalla flokk, sem má rekja aftur á konungatímann. Að Maríus hafi verið af bóndaætt, munu nú fáir trúa. Að því er snertir bandamannastríðið, hefði verið þörf á að taka betur fram, hvað um var barist og hvaða þýðingu stríðið hafði; meðal annars hefði mátt nefna, að oskiska, mál Samníta, varð ríkismál sambandsmanna; ef þeir hefðu sigrað, myndum við nú í skólum okkar líklegast læra það mál í stað latínu. Oljóst finst mér vera málið bls. 168, þar sem sagt er, að Lúcúllus hafi notið auðæfa sinna »með íþróttlegri smekkvísi«. Sama mætti segja um nokkrar setningar á bls. 17 1, svo sem: »Eins og Cæsar stofnaði hið voldugasta ríki . . . eins var hann af náttúrunnar hendi búinn hinum ríkulegustu hæfi- legleikum« eða: »unnið hylli hins spilta múgmennis« (fremur ljóst, en stirt). Þar sem sagt er frá útlegð Cícerós, ber þess að geta, að hún var mestmegnis af pólitískum ástæðum, svo að Clódíus varð þar verk- færi í annarra höndum, er þóttu návistir Cícerós óþarfar. Höf. dáist mjög að Cæsari, sem og má, en stundum hrósar hann honum fyrir ýmislegt, sem ekki á við, svo sem bls. 175: »Cæsar sýndi sína miklu andans yfirburði með því, að hann aflaði sér hermanna, er sýndu ósigrandi hugrekki* ; það hafa margir skussar og heimskingjar gert líka. Bls. 176 segir svo frá vígi Clódíusar, að næst liggur við að halda, að hann hafi verið drepinn í Rómaborg; svo var þó eigi, sem kunnugt er. Bls. 179 er sagt, að Cæsar hafi meðal annars orðið æðsti prestur, er hann kom aftur til Rómaborgar eftir sigra sína; það varð hann löngu áður. Bls. 182 er minst á son Cæsars og Kleópötru, en varla mun nokkur heilvita maður í Rómaborg hafa hugsað sér, að Cæsar mundi láta hann erfa ríkið, og þó einhverjir hefðu hugsað slíkt, þá má ómögulega telja það sem eina af aðalástæðunum til óánægjunnar með Cæsar. Endirinn á kaflanum um Cæsar er stirðari en þyrfti. Þá erum við komnir niður að keisaratímanum, einhverju merkilegasta tímabili í sögu mannkynsins. Því miður hefir höf. gert þennan kafla mjög stuttan, einkum siðari hluta hans, og er þó sannarlega ástæða til að vera lang- orður um sumt þar. Það þarf að rannsaka vel og skýra ljóslega frá aðalástæðunum til hnignunar Rómaveldis og vaxtar kristinnar trúar. í”að þarf að tala miklu ítarlegar um þjóðmenning Rómverja á þeim tíma; hin sbotnlausa spilling«, sem áður var vant að tala um að hefði átt sér stað þá, var miklu verri annarstaðar fyr og siðar. Enn fremur vantar gott yfirlit yfir breytingar á stjórnarfarinu; yfirlitið bls. 188 —191 er óriákvæmt og sumt vafasamt í því. T. d. staða og samsetning öldungaráðsins þyrfti að skýrast betur, og hefði verið ágætt tækifæri til þess bls. 193. Orðið »augustus« má ómögulega þýða »hinn hái«, sem á vora tungu vekur alt aðrar hugmyndir. Tfberíusi keisara er lýst miklu ver, en hann á skilið; menn leggja nú lítinn trúnað á hirðþvaður Suetóns um líf hans á Caprí. Varla er trygt að staðhæfa það, að postularnir Pétur og Páll hafi verið drepnir í Róm á dögum Nerós. það er líklegt, en ekki meira. Bls. 202 er sagt, að Títus hafi látið byggja »hin heitu böð« (thermæ) í Róm. En nú eru í Róm margar slíkar stofnanir, sem ýmsir keisarar bygðu, og má því eigi svo að orði komast. Um Domitían má segja sama og Tíberíus, að honum er lýst

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.