Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Page 55

Eimreiðin - 01.09.1901, Page 55
215 menn hafa tekið upp lóðarbrúkun á vetrarvertíð« . . . »Til hnekkis fiskiveiðum í eyjunum er beituskorturinn. Úr því mætti bæta mjög, ef menn hefðu íshús, sem geyma mætti síld í, ef hún yrði veidd eða fengin að« . . . sískjallarar ættu að minsta kosti að vera til í hverri veiðistöð, til þess að geyma síld úr íshúsum í um hríð, eða þá aðra beitu, ef það mætti«. Höf. segir, að Vestmanneyjar séu »eftir legu þeirra að dæma mjög vel fallnar til að vera stöð fyrir fiskiþilskip, þar sem þær liggja svo nærri ágætum fiskimiðum til beggja handa«. En gallinn er sá, að það vantar góða höfn. En væri »góð höfn við eyjarnar og íshús, þá lægju þær einnig vel við, til þess að stunda þaðan heilagfiskiveiðar og senda aflann ís- varinn á útlendan markað«. — Annar kaílinn er um ferð höf. með einu af botnvörpuskipum félagsins »ísafoldar« (Vídalínsfélagsins). Hann fór þá ferð til »að sjá veiðiaðferðina, fiskitegundir þær er fengust« o. s. frv. Höf. lýsir svo veiðiaðferðinni. Hann telur það »mjög áríðandi fyrir fiskiveiðar vorar, að eftirlitið (með botnvörpungum) verði framvegis full- komnara en nú er, þar sem að eins er eitt skip. Það veitti naumast af þremur, sem væru hér árið um kring«. — Þriðji kaflinn er um reknetaveiðar: Að veiða síld í reknet. »Nokkrir þilskipaútgerðarmenn í Reykjavík og nágrenninu mynduðu félag vorið iqoo, til þess að gera tilraunir til að veiða sfld í reknet í þeim tilgangi, að afla síldar til beitu«. Höf. telur, að tilraunir þær, sem félagið hefir látið gera með reknetaveiðar, hafi »gengið fram yfir allar vonir«. Hann getur »eigi betur séð, en að hér sé um atvinnugrein að ræða fyrir oss, sem ætti að geta orðið eins ábatavænleg og þorskveiðamar, ef veK væri á haldið«. — Að síðustu er dálítil grein um »merking á murtum o. fl.« Þessi ritgerð er mjög fróðleg og greinileg. Hún er í alla staði þess verð, að útgerðarmenn og fiskimenn veiti henni athygli. H. P. EINAR HJÖRLEIFSSON: ALÞÝÐUMENTUN HÉR Á LANDI. Erindi flutt að tilhlutun Kennarafélagsins í Rvík 20. apríl 1901. Sér- prentun úr Tímariti Bókmentafélagsins 1901. Það er sannarlega gleðilegt að sjá og heyra, að á síðustu árum virðast fleiri og fleiri meðal vor íslendinga vera að komast að raun um, að meginþorri íslenzkrar alþýðu stendur á sorglegu lágu mentunar- stigi. Það er gleðilegt, því að það gefur von um að bætt verði úr bölinu, þótt það sé á hinn bóginn sorglegt að komast að þeirri niður- stöðu, að svona skuli vera ástatt. En »þektu sjálfan þig!« Vilji menn bæta sína bresti, verða þeir að þekkja þá, og hin fyrsta vizka er að þekkja sína fávizku. Það hefir lengi farið orð af því, hversu vel mentuð þjóð íslend- ingar væru, og oft hafa útlendingar, sem ferðast hafa um landið, borið oss íslendingum gott orð að því leyti. Margir íslendingar hafa líka bæði í ritum og ræðum reynt meira til fullvissa þjóð sína um, að hún sé á háu mentunarstigi í samanburði við aðrar þjóðir, en að menta hana að nokkru. »Aftur á móti líta aðrir svo á, sem mentun vorri sé ískyggilega ábótvant og vér stöndum langt að baki frændþjóðum vor- um« segir höf., og er hann einn í þeirra flokki. Þessa skoðun sína

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.