Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Page 75

Eimreiðin - 01.09.1901, Page 75
235 við eldri leikrit Ibsens. Getur verið, að það sé of mikið sagt. En óhætt er að full- yrða, að leikrit þetta er í alla staði ágætt rit. Persónurnar, sem allar eru teknar úr sögu Gísla Súrssonar, eru: i. Í’orkelí Súrsson; 2. Gísli bróðir hans; 3. Þorgrímur fgoði) sonur í^orsteins þorskabíts; 4. Vé- steinn Vésteinsson; 5. Gestur (enn spaki) Oddleifsson; 6. Börkur (enn digri) bróðir Þorgríms; 7. Eyjólfur (enn grá) sonur l?órðar gellis, frændi forgríms og Barkar; 8.—9. Bergur og Helgi synir Vésteins; 10. Í*órdís systir forkels og Gísla, fyrst kona jÞorgríms og seinna kona Barkar; 11. Ásgerður kona Porkels; 12. Aubur kona Gísla og systir Vésteins; 13. Guðríður fósturdóttir Gísla og Auðar. Höf. fylgir vandlega sögunni, að því er lyndiseinkunnir persónanna snertir. Sagan er í öllum aðalatriðum rétt skilin. ]?ótt leikrit þetta sé ágætt (að líkindum bezta leikritið, er tekur efni sitt úr sögum vorum), þá gerir það eigi umbætur á sögunni_ Það stendur í sporum hennar en eigi feti framar. Slíkt listaverk er sagan sjálí. Eu hvernig víkur því við, að hún hefir slíkt listagildi? fví víkur þannig við, að sagan er óefað sönn. Persónunum er lýst alveg eins og þær vóru. Sakir þess verða lyndiseinkunnir þeirra skýrar og eðlilegar. Leikritið er í 3 þáttum í 1. þætti (Act) er 4 sýningar (Scene). Þær fara allar fram á Hóli í Haukadal í Dýrafirði: Samtal Ásgerðar og Auðar, veizlan á Hóli, Vésteinn veginn og heygður. í 2. sýningunni breytir höf. allmikið sögunni, og fer það yfirleitt mjög vel. — í 2. þætti (ári síðar) eru 6 sýningar. Þær fara fram á Hóli, Sæbóli (næsta bæ við Hól) og þar í grendinni: forgrímur er veginn og heygður, Gísli og Auður fara í útlegð. Margt er mjög vel sagt í þætti þessum. En höf. lætur eigi koma nógu skýrt í ljós, að það er einmitt fórdís, sem kemur vígi forgríms upp um Gísla. það hefði mátt sýna betur, hvernig hjúskaparástin til Í’orgríms og systur- ástin til Gísla börðust um yfirráðin í hjarta hennar. — í 3. þætti (nokkrum árum seinna) eru og 6 sýningar: í 1. sýningu leitar Gísli hjálpar til í^orkels. í^orkell er veginn á Þorskafjarðarþingi. Önnur sýning er viðbót við söguna: Gísli kemur að bæ sínum á Hóli um nótt. ]?ar liggur alt í rústum. Hann rifjar upp fyrir sér liðna tíma (í mjög skáldlegu eintali), 3. —6. sýning fer fram í Geirþjófsflrði: Auður vill eigi segja til Gísla, Vésteinssynir leita til systur sinnar, draumar Gísla og (í seinustu sýningunni) fall Gísla. 2. Annar hluti bókarinnar eru 18 frumort kvæði. Efni þeirra er tekið úr fornum norrænum og íslenzkum sögum. Þar eru kvæði um Sturlu Þórðarson, ]?órð kakala , Flugumýrarbrennu, Bolla og Guðrúnu, Glúm Geirason, Eyvind skáldaspilli o. s. frv. Kvæði þessu eru öll mjög góð og sum ágæt. 3. ]?riðji hluti bókarinnar eru þýðingar á nokkrum norrænum og íslenzkum kvæðum. Par eru þýdd kvæði eftir Sighvat Þórðarson, Egil Skallagrímsson, Har- ald harðráða, Kolbein Tumason o. s. frv. far er og þýdd ein Atlakviða og sam- tal Hervarar og Angantýs. Alls eru þýðingarnar 17 að tölu. !Þær eru allar vel af hendi leystar. Miss Barmby hefir verið vel að sér í íslenzku og mjög gott skáld á enska tungu. Ágætis-kvæði það, som hér fer á eftir, er sýnishorn kvæðanna í bók þessari. THÓRD THE SHERIFF. A post is come from our good king, in Norway amid the seas, To Sheriff Thórd the Sturlung, and bears such words as these: »Oh, long years have you pined, Sir Thórd, an exile in my hand, But longer years shall pay for all in your own native land. »1 will give you ready passport across the lceland Sea, And set all Iceland under you that you may rule for me.« Up spake Thórd the Sheriff, as he sat and poured the wine, »Oh, mickle thanks to our good king that mends this lot of mineí »For five years have I prayed,« he said, »that I might hence away And never came there gracious word until this merry day.« Out spake the grey old steward, sat at the Sherift’s board, «This is a sorry day for us if we must lose our lord!

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.