Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 10

Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 10
170 Pað félag, sem hefir gert oss þá gleði, að halda ársfund sinn hér í Kaupmannahöfn, og sem nú er hér statt í þessum sal, hefir barist fyrir því göfuga markmiði, að koma þar á réttlæti og sanngirni, sem örðugra var að koma því við, en á nokkru öðru sviði. Orðugleikarnir voru, eins og ég þegar hefi bent á, fyrst og fremst utanaðkomandi, af því réttarspurningin var látin lúta í lægra haldi fyrir svo nefndum æðri kröfum, nytsemdakröfunni. Höfund- aréttLirinn var fyrir borð borinn af því, sem bezt þótti haga í þann og þann svipinn. En þó margt mæli með því, að haga seglum eftir vindi, þá er sú aðferð, þó ekki sé hún einn hinn versti, samt nálega hinn hættulegasti óvinur réttlætisins. Pví næst komu til innri örðugleikar, með því að yfirleitt var ekki eins hægt að gefa ákveðnar reglur um andlegan eignarrétt og heimildarrétt líkamlegra muna. Lengi vel vildu menn ekki við hann kannast. Seint og síðarmeir létu menn í stað þeirrar hugmyndar koma höfundarrétt (í orðins eiginlegu merkingu) og ákváðu hann. Eins og ritari þessa félags, Albert Oesterrieth, hefir svo snildarlega sýnt fram á, var það í rauninni mál eitt á Englandi frá 1763, milli Millar og Taylor, út af kvæði James Thomsons »Árstíðirnar«, sem í þessu efni gerði breytinguna og beindi í rétt horf. En Alþjóöafélagið hefir samt sigrað allar torfærur, bæði innri og ytri, og komið á Bernarsamningnum 1886, er loks stofnaði það ríkjasamband bæði í og utan Evrópu, sem er grundvöllur allrar framtíðarviðleitni í þjónustu réttlætisins á þessu sviði. I það samband gekk Danmörk, þó seint væri, fyrir 6 árum. Hún haföi dregið það altof lengi, en hefir nú tekið fullum sinnaskiftum. Andlegi eignarrétturinn — styzt og næst að kalla hann svo — hefir orðið til þess að mynda heilt nýtt scorpus juris« (lagabálk), og stöðugt bætast ný vafamál við, sem úr þarf að greiða. Fátt getur fróðlegra verið, en að lesa hið heljarmikla rit —- 1000 bls. í stóru broti —, sem upprunalega er samið af Eugéne Pouillet, en nú hefir verið endurbætt og útgefið í annað sinn af hinum ágæta forseta Alþjóðafélagsins, herra Georges Maillard, sem sýnir oss þann sóma, að vera hér viðstaddur. I formála þeirrar bókar standa þessi fögru orð: »Hverjum mundi forðum hafa dottið í hug þessi réttindi, sem enginn verður nú til að mæla á móti, og sem eingöngu stafa af andlegri vinnu? Hver mundf

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.