Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Blaðsíða 23

Eimreiðin - 01.09.1909, Blaðsíða 23
IS3 hjá mörgum ef til vill nærri óafvitandi, en hjá mörgum aftur vís- vitandi — að komast fjær og fjær Dönum, losna við þá sem mest verða mætti í öllum greinum, svo að við loks gætum skilið við þá að fullu og öllu, orðið óháðir Islendingar sem fyrrum, sjálf- stæð þjóð í fullvöldu ríki — þjóðveldi. Konungssamband við Danmörku er Islendingum ekki neitt takmark; það gæti aðeins verið meðal eða millistig. Þegar farið var að semja við Dani, var rétt að Islendingar krefðust þess eins, með því að þar er fullveldisrétturinn trygður í fylstum mæli og ótvíræðastur, ef um samband ríkja í þeim efnum er að ræða. En er nú Danir hafa neitað að viðurkenna þenna rétt okkar, þá ber okkur eigi framar að leita samninga við þá, heldur stefna sem beinasta leið frá þeim. Takmarkið er skilnábur. Annað getur það ekki verið. — — Hvernig eru þá horfur þessa máls undir nýju stjórninni? Til þess að gera sér grein fyrir þessu, verður að geta nokk- uð framkomu nýja ráðgjafans, Björns Jónssonar, gagnvart Dönum, meðan hann stóð hér við. Pegar á fyrsta og öðrum degi tóku blaðamenn að streyma heim til hans og spyrja hann spjörunum úr; deildaforsetarnir kom- ust meir hjá þeim. Hann var líka til í tuskið og sat heilan og hálfan á skrafi við blaðasnápana. Samtölin vóru að koma út nærri alla vikuna í fjölda blaða.1) Kvaðst hann þar t. d., eftir því sem haft var eftir honum, aldrei hafa skrifað eitt óvildarorð í garð Dana og Danaóvild þektist nú ekki á íslandi; sér þætti einmitt mjög vænt um Dani og sama væri að segja af öðrum löndum sínum. Kalagreinar í »ísafold« í fyrra sumar, er beinst hefðu gegn Dön- um, hefði hann sjálfur ekki séð — þar sem hann hefði verið fjarverandi, er þær komu út — fyr en hann las um þær í dönsk- um blöðum; hefði þær skrifað ungæðisfauti einn eður angurgapi (»ungt Brusehoved«), er eigi hefðu verið gefnar nægar gætur! Yfir þessari syndajátningu hlökkuðu Danir í öðru orðinu, en þótti í hinu sem ráðgjafaefni Islendinga hefði gert harla lítið úr sér. Töldu þeir hann mundu ekki þora annað, er hann kom til ') Viðvíkj. því, sern sagt er hér á eftir um »blaðamannasamtölin« (B. J. og Kr. J.) sjá t. a. m. höfuðborgarblöðin: Nationaltid. 29/3 og (kvöldbl.) 30/3; Politiken WI9Í Ekstrabladet 30/3f 31/3 og J/4; Vort Land 31/3; Kobenhavn x/4; Kristel. Dag- blad ^/4; Bcrl. Tid. (kvöldbl.) 31/3: Dannebrog 31/3 og J/4.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.