Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 52

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 52
212 þá má geta nærri, hvernig honum er við kúgara landsins. Pað er sem hann fnæsi og blási á þá eitri og eldi: »Foreyðslunnar bölvun bráða bylti þeim sem mýjar þér«. Og vér megum meira að segja ekki lina sókninni, þótt lífið sé í húfi: »Hræðumst ei, þótt kosti fjör«. Og að síðustu særir hann sjálfan drottinn að hjálpa landinu og hefir í heitingum að rjúfa himna himnanna, með hróp-, um sínum »af heitum dreyra*, kringum hástól hins alvalda guðs, ef hann leggi ekki líknareyra við bænir hans: Viljirðu ekki orð mín heyra, skal mitt hróp af heitum dreyra eilíf náðin guðdómlig, himininn ijúfa kringum þig. í*að er eins og Hjálmar vilji fara með guð almáttugan, eins og hann lék »föllnu« englana íorðum, ef hann daufheyrist, og er ekki lítið færst í fang. Eitt kvæðið sýnir, að menn hafa horft með blending af eftir- vænting og kvíða fram á árið 1851. Brynjólfur Oddsson hét maður. Hann var bókbindari í Reykjavík og hagyrðingur. Hann yrkir kvæði á nýjársdag 1851, sem ráða má af ótta manna og óvissu á, hvað þeir ættu í vændum: »Eins er sem henni eitthvað í hjarta liggi þungt, þótt leyni kvíða, sem bregðist henni til beggja vona, að komandi ár að óskum gangi«4). En þá skín sól- geisli alt í einu inn um gluggann: »Hvort mun þá skína yfir höfði þér, eykonan aldna, á ári komanda fagur geisli frelsissólar og ánauðarfjötur af þér slitna?« (Ljóðmæli, Reykjavík 1869). Aftur er eins og öðrum hafi heyrst dómsins lúður gjalla: »Er sem efsta degi alda hallað sé« var kveðið til Jóns Guðmundssonar eftir þjóðfundinn. En svo er bætt við, og það sýnir, hve mönnum hefir fundist til um rang- sleitni þá og »morð« á frelsi landsins, er framið var á þjóðfund- inum: Eg í anda eygi eins og rofin vé heilög séu sannleikans. Fúsir vinna frelsismorð féndur lsalands.« (Ljóðmæli eftir Gísla Eyjólfsson. Seyðisfirði I883). Brynjólfur Oddsson hefir verið mikill þjóðarsinni, eins og Jón Sigurðsson kemst oft að orði. Hann hefir ort rímu af hermönnunum,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.