Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 58

Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 58
218 Steingrímur segir í Vorhvöt, að ástandið batni, ef þjóðin bili eigi (»En bót er oss heitið, ef bilar ei dáð«). Haustið 1872, rúmu ári á undan birting stjórnarskrárinnar, segist Jón Ólafsson alls ekki vera smeykur við, að það verði elcki endinn, »að vér einir hér ráðum í landi«. (Kvæðið Áfram. Einkunnarorð þess eru eftir Vinje: Dat berre spursmaal er um tid). Pað er því ekki nýr boðskapur, að vér viljum ráða einir öllu á Islandi eða öllum málefnum vorum. En »extrema se tangunt«. Samtímis því sem þjóðin er heimtufrekari á réttindi sín og sigurvæntingin meiri en nokkru sinni fyr, hljóðar hún mest undan þjáningum kúgunarinn- ar og er næst komin örvænting og uppgjöf. Pá hófust Vestur- farir með fram fyrir óstjórn Dana (sjá Fréttir frá Islandi 1873, bls. 2. »Nú ætlið þið til Ameríku úr ánauð burt í frelsi og ró« kveður Jón Ólafsson »Til Ameríkufaranna«). Pað er til merkilegt kvæði eftir Matthías, »Stjórnarmálið 1860« (Ljóðm. II, 60—61). Par koma í ljós þessar tilfinningar allar, frelsistrúin og frelsismóð- urinn, sannfæringin, að þjóðin eigi landsréttindi sín óskert, ánauð- arkvölin og örvílnanin: Pað er auðheyrt, að hann talar guðamál- um trúarinnar — eins og Matthías myndi sjálfur segja — til þjóðar, sem ætlar alveg að örvílnast: »Vertu óhrædd, veika þjóð, vörn í þinni sök fram mun færð um síðir með full og heilög rök.« Síðar telur skáldið áþjánarharma þjóðar sinnar. Og þá er það sem vér heyrum móður tárast yfir sjúku barni, aumka það og hugga það á, að því batni bráðum. Pað er grátbljúg viðkvæmni og sorgbitinn sársauki í þessum fallegu og látlausu vísum: Lengi hefir þú, fósturfold, felt hin bitru tár. Himna-guð einn heyrði, hve hörmung þín var sár.1) En svo kemur huggun trúarinnar: »Eigi sífeld eymd og kvöl er þér, móðir, léð heldur fremd og frelsi, ef fara kantu með. ') 1874 orti Bólu-Hjálmar: Frautir talið getur. »Blóðug sugu brjóstin þín börnin gráti mett. Þú seldir blóð, en seldir ei sona þinna rétt.« Úr því þú sazt ein i rann yzt í foldargeim, átt þú óskift frelsi enn í skuld hjá þeimL mínar í þúsund ár þekkir guð einn og

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.