Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Qupperneq 60

Eimreiðin - 01.09.1909, Qupperneq 60
220 I’etta er líka hvöt! Pá fór Símon Dalaskáld að yrkja um stjórn- mál og Dani. Pað sýnir, hve gagntekin þjóðin hefir verið af kúg- un þeirra (Jón Ólafsson segir við íslendinga í »Áfram«. »Pið hugsið, að danskurinn hamli okkur alls« en kveður slíkt upplogna afsökun). Hann (Símon) segir, að við þurfum líka skorður ramm- ar reisa rangri(!) Danakúgun við (Smámunir III). Hann yrkir líka um, hve Fjallkonan sé illa leikin af Dönum (»Eins og gömul ertu frilla — orðin kæra móðurlóð — aumleg Dana undirtylla —, er þitt drukku hjartablóð«, Freyja 1874). Pá báru menn og hinn mesta heiftarhug til konungkjörinna embættismanna og sporgöngumanna þeirra, af því að þeir fylgdu Dönum að málum. (Smbr. vísur séra Björns Halldórssonar: »Eg er konungkjörinn — kross og nafnbót fæ«------------»Fyrir danska sæmd og seim sel ég íslenzkt blóð«). Petta hatur ryðst út með heljarkrafti í Islendingabrag Jóns Ólafssonar. Par vill hann senda höfuðskepnurnar og alla náttúruna, sævarbrimið, fossana og fjöll- in, á þá að kvelja þá, og jafnvel stráin á jörðunni eiga að hjálpa til að pína þá (»Bölvi þeim ættjörð á deyjanda degi — daprasta formæling ýli þeim strá, en brimrót, fossar, fjöllin há, veiti frið stundarlangan þeim eigi. — Frjáls því að Islands þjóð — hún þekkir heims um slóð —, ei djöfullegra dáðlaust þing — en danskan Islending«). Bjarni hélt, að danskir íslendingar væri ekki að neinu verðir. Jón hyggur, að andskotalegri skussa geti ekki um víða veröld. — En það væri fróðlegt að vita, hvort Jón hefði lesið níðsönginn í Manfreð, áður en hann orti þetta aflmikla erindi. Um þessar mundir rituðu tvö íslenzk skáld mikið um við- skifti vor og Dana. Pað voru þeir jafnaldrarnir Gísli Brynjúlfs- son og Benedikt Gröndal. Gísli ritaði í dönsk blöð, »Fædre- landet« og »Berlingske Tidende«. Hann brýst þar um á hæl og hnakka með hamagangi og ákafa að sýna Dönum fram á, að forusta Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðissókn Islendinga hafi valdið hinum mestu 'firinvillum og glundroða. Hann kallar Jón stór- snilling í að rugla og þvæla (En stor Mester i Konfusionskun- sten). Pótt sumt sé skarplegt í greinum þessum, innanum allan vaðalinn og útúrdúrana, er samt raun að vita til þess, að tslend- ingur hefir ritað þær. Hann blygðast sín ekki fyrir að rægja Jón við Dani. Hann þýðir ummæli hans um þá, þar sem er óvin- gjarnlega að orði komist í garð þeirra. Enginn Dani getur talað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.