Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Side 75

Eimreiðin - 01.09.1909, Side 75
235 hinum merkasta og örlagaþrungnasta þætti i sögu landsins. Og þó hún sé rituð af samtíðarmönnum, ber öll frásögnin vott um svo mikla sannleiksást og óhlutdrægni, að slíkt gegnir hinni mestu furðu um menn, sem sjálfir hafa verið við viðburðina riðnir að meira eða minna leyti. Og ekki mundi kerlingunni, sem ekki þótti gaman að guðspjöllunum, af því enginn væri í þeim bardaginn, hafa þótt ónýtt að heyra lesna Sturlungu; því ekki skortir þar bardaga og blóðs- úthellingar. Heldur er þar alt of mikið af hryðjuverkum, svo að hrollur fer um mann að lesa um öll þau grimdarverk og ódæði, sem frá er sagt. En ekki þó svo að skilja, að þar beri ekki líka margt hugð- næmt á góma og dregnar séu skýrar og fallagar myndir af daglegu lífi manna, siðum og menning. í því er Sturlunga einmitt flestum sögum fremri — af því hún er svo áreiðanleg. Allir, sem einhverja hugmynd vilja hafa um sögu landsins, verða að lesa Sturlungu, — ekki einu sinni, heldur oft og mörgum sinnum. Af henni má meira læra en fjölda af öðrum bókum. V. G. ÞORV. THÓRODDSEN: LÝSING ÍSLANDS II, i. Khöfn 1909. í þessu hefti er lýsing á jöklum landsins, hraunum, eldfjöllum, landskjálftum, hverum, laugum og brennisteinsnámum. Er framsetn- ingin að vanda hin fjörlegasta, og jafnframt lýsingunni jafnan sögulegt yfirlit yfir náttúruviðburði og annað, sem stendur í sambandi við þetta. f’ar eru og 44 myndir og uppdrættir. V. G JÓN ÓLAFSSON: STAFRÓF VIÐSKIFTAFRÆÐINNAR. Rvík l9°9- Höf segir í formálanum, að bók þessi sé hvorki þýdd né frum- samin, eða öllu heldur bæði þýdd og frumsamin. Hefir hann lagt til grundvallar »Economics for Beginners« eftir H. D. Macleod, en jafnan lagað efni sitt og dæmi í hendi sér eftir því, sem bezt þótti hæfa fyrir íslenzka nemendur og lesendur. Hefir bæði val bókarinnar og með- ferð hennar í endursamningunni tekist hið bezta, því hún hefir mikinn og nauðsynlegan fróðleik inni að halda, og öll framsetningin er svo skýr og ljós, að engum er vorkunn að geta haft fult gagn af lestri hennar, þótt hann áður sé alls ófróður um þessi efni. Bókin er fyrst og fremst ætluð til að vera kenslubók í Verzlunarskóla íslands, og er hún vel til þess löguð. En hún er líka ágæt fræðslulind fyrir alla aðra unga menn, sem fást við viðskifti og verzlun, en ekki eiga kost á að afla sér skólakenslu. V. G. íslenzk hringsjá. BJARNI SÆMUNDSSON: OVERSIGT OVER ISLANDS FISKE (í »Skrifter udgivne af Kommissionen for Havundersógelser, Nr. 5«, Khöfn 1909). í riti þessu er fullkomin skrá yfir allar þær íslenzkar fiskategundir,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.