Eimreiðin - 01.01.1911, Side 7
7
þú steytir ei fót þinn við steini.
þín stétt er sem hefluð úr beini,
og alt er þér unnið í hag.
Én þetta er honum að þakka,
sem þjónar þér nótt eins og dag.
Hann tekur í eimhestsins tauma
og teymir hann hvert sem þú fer,
þú svífur við sællífis drauma,
og situr sem heima hjá þér.
Og dilli þér listin og ljóðin
og ljúfustu söngvanna hljóðin
er fylla þig unaðarfró,
þá prentar það bróðirinn blakki
á bókanna drifthvíta snjó.
Svo stritar hann hógvær og hljóður,
hvort hlýtt er loft eða kalt.
Um heitið þess huldu-bróður
þú hirðir ei: »Borgað er alt!«
Ei meira þarf hót — að þú heldur —,
en hvað þá, ef losnaði eldur
og upp kæmi stormur og stál, —
ef alt yrði hafsjór af höfðum,
sem hrópuðu: »Refsing og bál!«
Pví lærðu að þekkja þann þjóninn,
og þýðast sem bróður og vin,
en hættu við háðslega tóninn
og hjálpræðis fordildar-skin;
en fá honum frjálslyndið djarfa
og framför til andlegra starfa,
og fá honum jafnréttið fljótt!
Og sýndu, þú sért honum bróðir,
já, sýn það, og gerðu það skjótt!