Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1911, Page 23

Eimreiðin - 01.01.1911, Page 23
23 Gleymdist land og gleymdist Trója, gleymdist ættin þjóðum kunna: herfang vorum hreystimanna, hlutur vor er þeim að unna. Vér erum Sjafnar sigurmerki, sett að prýða konungsenni; því vér elskum — þótt vér höt- um — þessi prúðu heljarmenni. 2. Hvert stefndi lífið) Hvert stefndi líf mitt? Leið það feigðarslóðir? Sem lítið barn, er grátið kallar: Móðir! ég farið hefi hvíldar-vana vegi, sem víðar rastir út á hafsins legi, er æða fram og tilgang ei né takmark kenna. En svöl var nótt og sólin skæð að brenna, því svikalogn og stormar blektu, grættu, þó gullin blóm við göturnar mig kættu. Og ávalt sama sorg mér bjó í hjarta. Við sólarlagið dró upp mökkinn svarta; ég vissi fátt, er braut mér bjóst að velja; en bezt mig fræddu skuggar þínir, Helja. Pví mótsetningin lýsti lífsins auðinn, svo lífi stöku gleymist sorgin, dauðinn. Og ég varð ríkur; ráð er ei að kvarta, því reynslu þarf hið bernska, þrjózka hjarta. Ég hafði þegið karlmanns hug og hreysti en hjarta konu, ást og mildi treysti; ég gekk í leiðslu, sólskinsdraumi dreginn, með dramb í lund, en hverju litlu feginn. Ég hlaut minn skamt af söngsins sigurlaunum, hans sumardýrð og köldu vetrarraunum.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.