Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1911, Blaðsíða 71

Eimreiðin - 01.01.1911, Blaðsíða 71
7i búa góðir menn og siðlátir . . . Þar er einnig staður, s^m Náströnd heitir.« Eftir þessu ætti Náströnd að vera á Gimli, en það er þó víst varla meiningin. Það væri líkt og sagt væri, að Helvíti væri einhvers- staðar í horninu á Himnaríki. A bls. 47 segir, að »Ás hinn almátki,« sem ákallaður var við helgun þings ásamt Frey og Nirði, hafi líklega verið Oðinn. En því fer fjarri. Það var Þór, sem var höfuðguð ís- lendinga, en Óðinsdýrkunar er vart getið í sögum vorum, og vafa- samt, hvort hún hefir nokkurntíma náð til íslands að nokkru ráði, þó menjar hennar finnist í kvæðum sumra skáldanna. Á bls. iit segir, að landaurarnir hafi verið 13 aurar xvaðmáls eða silfurs«. Eins og eyrir vaðmáls og eyrir silfurs væri hið^sama! Höf. getur nú reyndar borið fyrir sig ritgerð próf. B. M. Ólsens í Skírni um að svo muni verið hafa á landnámsöld. En það er jafnmikil fjarstæða fyrir því, og hefir aldrei átt sér stað. Hitt er líka rangt og bygt á misskilningi, að landaurarnir hafi nokkurntíma verið 13 aurar vaðmáls. Þeir voru að sögn Ara oftast hálf mörk silfurs (4 aurar), en það samsvaraði á fyrra hluta þjóðveldistímans 32 aurum vaðmáls, en á síðari hluta hans ekki nema 30 aurum vaðmáls. — Á bls. 125 segir: »Sumir trúðu því, að þeir dæi í fjöll og hóla, en færi ekki til Yalhallar. En þá mun Val- hallartrúin hafa verið farin að dofna hér á landi.« O, sussu nei, þessu víkur alt öðruvísi við. Hér er einmitt um eldri trú að ræða, sem enn helzt hjá alþýðunni samhliða Valhallartrúnni, eða þá að hin unga Valhallartrú hefir aldrei fest verulegar rætur hjá almúganum á íslandi; og ber þá að sama brunni og áður var á drepið um dýrkun Óðins. Valhallartrúin var líka aðallega höfðingjatrú og víkinga, en ekki frið- samlegrar alþýðu. Á bls. 192 segir um sögurnar: »Sumar eru eigi vel ritaðar, en aðrar mega teljast listaverk, svo sem: »íslendingabók, Egilssaga« o. s. frv. Ef miðað er við orðfæri eða ritsnild (eins og hér er gert), þá fer því fjarri, að íslendingabók Ara geti kallast listaverk, sem varla er heldur við að búast, þar sem hún er fyrsta tilraun til að rita á íslenzku. Kostir hennar eru annars eðlis, og þeir eru svo miklir, að hana má vel kalla einn hinn dýrasta gimstein í bókmentum vorum, þótt engri stílsnild sé þar fyrir að fara. Aftur má vel kalla Laxdælu listaverk, en þar sem sagt er um hana (bls. 193), að hún sé »mjög áreiðanleg«, að Bollaþætti frátöldum, þá er það mjög fjarri sanni, því hún er einmitt næsta skáldsögukend og ríður í mörgum greinum í fullan bága við sögulegan sannleik. En það er ekki minni nautn í að lesa hana fyrir því, heldur að meiri. — Á bls. 202 segir: »Elztu kvæðin eru um goðin og fornhetjur og kallast skjaldarkvæði, því að þau voru greypt á skildi milli spanganna.« Þetta verður varla skilið á annan veg, en að skjaldarkvæðin hafi fengið nafn sitt af því, að þau (kvæðin) hafi verið greypt á skildina. En þess munu þó engin dæmi, heldur hins, að kvæðin voru ort um efni eða myndir, sem voru sýndar á skjöldunum, hvort sem þær nú hafa verið greyptar, skornar eða málaðar. Prentvillur eru stundum óþægilegar í bókinni, t. d. »forbaðaði« (171) f. forboðaði, »príarar« (184) f. príorar, shanda heit« (184) f. halda heit, »Þrymir« (209 og 210) f. Þrymur o. s. frv.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.