Eimreiðin - 01.09.1912, Side 15
»Friblaus er þjóbin; svo er fyrir að þakka, og friðlaus
skal hún verða.i
Þetta sagöi blaðið, meðan sólin var hæst á lofti, til skelf-
ingar öllum illum öndum og til lífláts miljónum kvikindisaugna.
Mikið er langlundargeð sólarinnar, að hún skyldi halda áfram
að skína.
En Porgeir ljósgoði lá 3 daga og 3 nætur undir feldinum og
lagði sig í líma, til að finna þau ráð, sem varnað gætu því, að
friðnum yrði sundurskift í landinu.
Sjónarhæðin, sem hann valdi sér og stóð á, á þúsund ára
takmarki tímatalsins, gerir hann ódauðlegan í heimi hágöfugrar
ættjarðarástar. Pessi friðarhöfðingi ljómar út við sjóndeildarhring
sögunnar eins og logandi viti í náttmyrkri — eins og ljómandi
og lýsandi viti.
Foreldrar, sem heyrið mál mitt, annaðhvort orð fyrir orð, eða
þá bergmálið af því; og kennarar, sem hafið æskuna undir hönd-
um! kennið börnunum að þekkja sundur vonda ættjarðarást og
góða.
Gæfa þjóðarinnar veltur d þessu kefli.
Líf þjóðarinnar leikur d þessum möndli.
Pið getið stuðst við vitnisburð sögunnar, þann sem hún gef-
ur, með því að mála myndina af mönnunum, sem þóttust elska
ættjörðina, og mönnunum, sem elskuðu hana í raun og veru.
Öðrumegin eru góðu nöfnin: Porgeir á þingi og Gestur spaki,
sem tárfeldi, þegar hann sá í hendi sér missætti fóstbræðranna
Kjartans og Bolla. Porkell máni er þeim megin. Hann bað að
bera sig út í sólargeislana á banadægri; þar vildi hann fela sig
þeim, sem sólina hefði skapað. Síðu-Hallur vildi vinna það til
sátta á ófriðarþinginu eftir Njálsbrennu, að leggja son sinn ógild-
an. Pessir menn og ótal fleiri eru ástmegir einlægrar föðurlands-
elsku.
Hinum megin standa eiðrofar og brennuvargar Sturlungaald-
arinnar, Hrappur og Mörður og Hænsa-Pórir — og alt afkvæmi
þeirra, það er endalaus svínfylking, og svo þykk að hvergi sér í
gegnum.
Vonda ættjarðarástin þekkist af liðinu, sem fylkir sér um
hana í hagsmuna skyni, og af landinu, sem það stendur á. Pað
er alt blásið og bert og gróðurlaust. Fólkið gengur með sinulitar
hendur af aðgerðaleysi og visnar, en munnurinn er vaxinn langt