Eimreiðin - 01.09.1912, Blaðsíða 39
195
Lyftingar: i. Jón Ásbjörnsson (301 &), 2. Halldór
Hansen (296 ®).
Grísk glíma: I þyngri fl. (yfir 150 S): 1. Sigurj. Péturs-
son, en Haraldur Einarsson heiðursskjal fyrir góba frammistöðu;
í léttari fl. (undir 150 S); 1. Vilh. Jakobsson.
Sopþleikur (knattspark): Par keptu »P'ótboltafélag Rvíkur«
og »Fótboltafélagið Fram« og bar »Fram« hærra hlut með 2
vinningum gegn 1.
Leikmót þetta var stórmyndarlegt yfirleitt. Menn urðu hrifn-
ir af fimleik og dugnaði »Iþróttafélags Rvíkur« á leikvanginum.
6. ÍÞRÓTTAFÉLAG RVÍKUR SÝNIR LEIKFIMI 5. JÚNÍ 1910.
Pað hafði fyrst sýnt sig opinberlega í Barnaskólagarðinum 5. júní
1910 undir stjórn Bertelsens verkstjóra og fengið mikið lof; en
næst sýndi það sig 12. júní 1911, þegar Leikvangurinn var vígð-
ur, og bæði þá og nú undir stjórn Jóns Halldórssonar bankarit-
ara, sem við tók af Bertelsen og hélt áfram í sama horfi og anda.
Pessar leikfimissýningar félagsins hafa vakið mikinn áhuga hjá
mönnum fyrir leikfimi og íþróttum, og sýnir það bezt, hve gott
menn hafa af að vera í íþróttafélagi og æfa sig þar. Pó má þess
geta, að leikfimissýning félagsins var yfirleitt ekki eins góð á
leikmótinu 18. júní, eins og hún var 12. júní, þegar undan eru
skildir einstaka snillingar félagsins, sem aldrei koma öðruvísi fram