Eimreiðin - 01.09.1912, Blaðsíða 35
19\
heimurinn í sömu röð og áður í hring á vellinum og svo út af
leikvanginum, og var þá fagnað af áhorfendum með lófataki.
Að vörmu spori komu »lðunnar«-meyjarnar (leikfimisfl. U.
M. F. »Iðunnar«) aftur inn á leikvanginn, ásamt kennara sínum
Birni Jakobssyni, og sýndu þar leikfimi. Var það flestum svo ó-
vanaleg sjón, að undur þótti að horfa á stúlkur fremja leikiimi.
Pað var líka undur fagurt að horfa á stúlkurnar, ekki af því
einu, að þær voru svo fallega vaxnar, heldur og af því, hve allar
æfingar fórust þeim snildarlega úr hendi. Og þetta eiga Rvíkur-
búar í fórum sínum, án þess að vita af því. Pað eru svo frá-
munalega fáir, sem hugsa um líkamsmentunina. U. M. F. Iðunn
er ekki nema einn lítill kvistur af hinum mikla sæg ungra meyja
í Rvík, en þær hugsa um líkama sinn; þær vita og skilja, hve
áríðandi það er fyrir smáþjóð, að vera hraust þjóð, og þær gera
sitt til að ná því takmarki. Pað sýnir hinn mikli dugnaður þeirra
í leikfimi og sundi. Og að þær þykjast ekki of fínar til að vinna,
sýnir áhugi þeirra og ástundunarsemi við vinnuna að skíðabraut-
inni, dag eftir dag og viku eftir viku, í frístundum þeirra. »Iðunn«
er og hefir verið fyrirmynd allra ungra kvenna í Rvík, og óhætt
að segja um land alt, að því er vér til þekkjum. Má vera að sá
dómur verði til að vekja henni upp öfundarmenn, en það er þá
ekki nema vanaleg fylgja þeirra, sem eitthvað skara fram úr,
einhvern verulegan dug sýna, áhuga og atorku.
»Iðunn« fékk stóran og fagran silfurskjöld fyrir leikfimissýn-
ingu sína á leikmótinu, og vóru á þann skjöld letruð þakklætis-
orð fyrir góða frammistöðu, enda áttu þær það margfaldlega
skilið. Pað var ekki nema lítil viðurkenning á þakklætisskuld vorri
fyrir ljómann, sem þær brugðu yfir leikmótið og hátíð þess með
framkomu sinni. Pær vóru líka kvaddar með margföldu fagnaðar-
ópi, er þær hurfu af leikvanginum, og var þá á lúðrana leikið »Fóstur-
landsins Freyja«.
Næst kom »íþróttafélag Rvíkur« fram á völlinn og sýndi
ofurlitla stund ágætis leikfimisæfingar, og því næst leikfimisflokkur
U. M. F. Rvíkur sömuleiðis. Pá stukku nokkrir langstökk og var
með því lokið íþróttasýning þess dags. Höfðu sýningar þessar
staðið 2 stundir, en þær þóttu liðið hafa sem mínútur, svo al-
menn var ánægjan, og svo vel leið mönnum á þessum nýja leik-
vangi, þessu nýskapaða heimili fyrir hreysti og atgjörvi ungra
manna og kvenna.
13'