Eimreiðin - 01.09.1912, Blaðsíða 33
189
erlendis, en sem frétti af því basli, er íþróttamenn hér heima
ættu í með peninga og allar íþrótta-framkvæmdir. Bauðst hann
þá ótilkvaddur til að leggja fram 2000 kr. ábyrgð í verðbréfum,
og herti þannig á og lyfti undir áhuga manna fyrir málinu, bæði
með þessu framboði sínu og hvetjandi eggjunarorðum í blöðunum.
Pessi maður var dr. Valtýr Guðmundsson í Khöfn, og mun-
um vér íþróttamenn allir samhuga um að þakka honum fyrir
vikið. Pað sýnir, hve mjög hann hugsar um og er ant um fram-
farir landa sinna í líkamsmentun. Leikvangurinn' (eða »íþrótta-
völlurinn«, sem hann var nefndur) komst þannig upp undir stjórn
4. LEIKVANGURINN í RVÍK VÍGÐUR 12. JÚNÍ 1911.
og fyrirsögn landsverkfræðings Jóns Porlákssonar, og var
vígður 12. júní 1911 af formanni Iþróttasambandsins Ólafi Björns-
syni, sem einna fastast hefir beitt sér fyrir þetta velferðarmál.
Þann dag sýndi »íþróttafélag Rvíkur« þar leikfimi undir stjórn
bankaritara Jóns Halldórssonar, og naut þannig þess heiðurs að
vígja hinn fyrsta nútíðar-leikvang íslendinga.
Leikvangurinn var þá albúinn og kom í góðar þarfir, þegar
sett var leikmót Ungmennafélaga íslands á aldarafmæli Jóns Sig-
urðssonar, 17. júní, — af biskupi landsins Pórhalli Bjarnarsyni.
Var þann dag mikið um dýrðir í Rvík og hátíðablær yfir öllum,
ekki sízt yfir íþróttamönnunum. Pað var vorhugur í mönnum,
13