Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1912, Page 34

Eimreiðin - 01.09.1912, Page 34
190 ungum og gömlum, leikvangurinn nýi alþakinn fólki og fögnuði, veifur á hverri stöng, og íslenzkur heilbrigðis- og hreystiblær yfir öllu. Pað var líka verið að setja stærsta leikmótið, sem háð hefir verið á Islandi alt frá landnámstíð — að því er oss er kunnugt. Með þessu leikmóti var stigið nýtt spor til að vekja dálæti æskulýðsins á líkamsmentuninni, til að endurvekja hreystina í landinu. Vér hlustum og hlustum, og heyrum knálegt og samstilt fótatak —• og 'fram á völlinn stígur sjáleg fylking íþróttameyja. 5. U. M. F. IÐUNN SÝNIR I.EIKFIMI Á LEIKMÓTI U. M. F. ÍSLANDS 1911. Það er s-íþróttafélagið Idunnt, sem er skjaldmær og valkyrja leikmótsins. Pá kemur »Iþróttafélag Rvíkur«, »U. M. F. Rvíkur«, »Fótboltafélag Rvíkur«, »Fótboltafélagið Fram« og svo margir í- þróttamenn úr ýmsum félögum. Gengur fylkingin öll fram á miðj- an leikvanginn, og er félögunum þar skipað í raðir andspænis ræðupalli, sem reistur hefir verið fyrir miðju. Að því bunu stíga fylkingarnar fram yfir völlinn og tiema staðar fyrir framan ræðu- pallinn og heilsa með fánum sínum. Pá tók biskup til máls og hélt snjalla ræðu, örvandi og hvetjandi, og að henni lokinni lék lúðrasveit »Ó, guð vors lands«. Að því búnu gekk allur íþrótta-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.