Eimreiðin - 01.09.1912, Qupperneq 57
213
veiki einhverntíma á æfinni, sem krutningar á líkum sýna. Að
minsta kosti virðast krabbameinsfrumlurnar stundum vekja tiýja
krafta til lífs í líkama sjúklinganna, sem einstöku sinnum geta
unnið bug á sjálfri meinsemdinni. En hverri aðferð náttúran beit-
ir og hver efnasambönd myndast í líkamanum, vita menn því
miður nauðalítið um enn sem komið er.
Af þessum ástæðum og í því trausti, að gagneitur gegn
krabbameini myndist í blóði sjúklinganna, hafa menn reynt blóð-
vatnsídæling gegn krabbameinsemdum, á svipaðan hátt og menn
nota þessa lækningaaðferð gegn hýðisveiki, heila- og mænubólgu,
stjaría og svartadauða. Ett aðferð þessi virðist þó ekki hafa neinn
verulegan árangur gegn krabbameini, og stundum aðeins gera
sjúklingunum skaða. Menn hafa líka reynt einskonar bólusetningu
gegn krabbameini, sem er þannig löguð, að menn búa til vökva,
sem ekki eru í nema fáeinar krabbameinsfrumlur, og dæla svo
þessum vökva inn í blóðæðar tilraunadýra, er vanalega sýkjast
og fá krabbameinsæxli einhverstaðar í líkamann. En þetta æxli
hverfur þó venjulega skjótt af sjálfu sér, og þau dýr, sem fengið
hafa slíka innspýtingu, eru síður móttækileg fyrir krabbamein. En
sá er hængur á þessari aðferð, að sum þeirra krabbameina, er
myndast á þennan hátt, hverfa ekki aftur, heldur halda áfram að
vaxa, unz dýrin að lokum drepast. Aðferðin er því óbrúkandi,
þegar um menn er að ræða.
Fyrir skömmu hafa menn uppgötvað nýja og því sem næst
örugga lækningaaðferð gegn einskonar krabbameinum (íymþhosar-
com) á hundum, sem er í því fólgin, að menn tæma út mikinn
hluta af blóði hinna veiku hunda og dæla svo aftur inn í blóð-
æðar þeirra blóði úr hundum, sem við tilraunir hafa reynst ómót-
tækilegir fyrir krabbamein. Af þessari tilraun virðist mega draga
þá ályktun, að gagneitur það, sem eyðileggur krabbameinsfruml-
urnar, sé í blóði hinna ómóttækilegu dýra, þótt eigi finnist það í
blóðvatni (serum) úr þeim.
Ýmsar fleiri lækningaaðferðir hafa menn reynt gegn krabba-
meini, eins og t. d. þá, að sýkja krabbameinssjúklinga með
heimakomu (eryszþe/os), er stundum getur læknað krabbamein í
hörundinu. Af nýjustu meðulum gegn krabbameini má og nefna
vColey'sfluid^, sem er einskonar krabbameins-blóðvatn, sem
spýtt er inn í sjálf krabbaæxlin, og stundum virðist verða að liði,
að minsta kosti um stundar sakir. En þessi lækningaaðferð er