Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1912, Síða 70

Eimreiðin - 01.09.1912, Síða 70
22 6 svo þessa sending, þennan einokunar-uppvakning, sem tnilliþinga- nefndin hefir magnaö, til að taka fyrir kverkar henni og kyrkja hana í fæðingunni. — Alveg eins og einokunin gamla gerði við skúturnar hans Skúla fógeta. Enn eru og kolin afltaugin í ihnaði allra þjóða, og svo hlýt- ur og að verða hjá oss, eigi nokkur verulegur iðnaður að rísa upp í landinu. Pví langt mun þess að bíða, að vatnsaflið íslenzka, hvort sem er beinlínis eða breytt í rafmagn, verði alment notað til iðnaðar. Og víða verður því alls ekki við komið, einmitt þar sem skilyrði fyrir vexti og viðgangi iðnaðar annars eru bezt, við hafnir og skipaleiðir. þar munu kolin jafnan verða lífsskilyrði fyrir iðnaðinn. Og iðnað er ekki síður nauðsynlegt að skapa nú í landinu, en það var á dögum Skúla fógeta. En hvað varð iðn- aðarstofnunum hans að aldurtila? Var það ekki einmitt einokunin? Jú, sannarlega var það hún. Og sannarlega mundi kolaeinokunin nýja líka verða til þess að kæfa margan efnilegan iðnaðarvísinn í fæðingunni, eða jafnvel fyr: drepa sjálfa hugmyndina eða fyrir- ætlunina í höfði manna, áður en hún eiginlega fæddist eða kæmi til framkvæmda. Hún mundi því ekki einungis stórum þjaka þeim framfarabörnunum, sem komin væru á legg eða farin að stálpast, heldur myrða allan fjöldann af þeim í móðurlífi. Loks eru kolin allvíða aðaleldsneyti landsbúa og sem slík afltaugin í svo margskonar öðrum framförum, og ættu og mundu verða enn betur, ef sala þeirra væri frjáls látin. Eitt af skilyrðun- um fyrir verulegum framförum í landbúnabinum er þannig, að menn hætti að brenna áburðinum, sauðataðinu, og afli sér í þess stað kola til eldsneytis. Pá eru og betri húsakynni meginskilyrði fyrir viðunanlegu heilbrigí)isiíji í landinu. En verulegar hýbýla- bætur, hvort sem eru timburhús eða steinhús, eru óhugsandi, nema kol séu höfð til upphitunar þeim. Svona mætti lengi halda áfram upp að telja og sýna fram á, að kolin mynda ýmist undir- stöðusteina eða þá hornstafi í svo mörgum framfarabyggingum, að þær mundu sumpart hrynja og sumpart aldrei komast upp, ef þeirra ekki nyti við. En af því má öllum vera ljóst, hve fáránlegt Lokaráð það væri, að leggja hömlur á öflun þeirra, með því að hneppa kolaverzlunina í einokunarlæðing, og láta erlendan auð- kýfing halda í endataugina. Að því er stemolíuna snertir, þá er nægilegt að benda á, að hún er aðalljósmeti manna um land alt, og afltaugin í mótor-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.