Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 5

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 5
8i 6. LÚTHER BURBANK. Svo heitir amerískur garðyrkjumaður; sem orðinn er heims- frægur fyrir tilraunir þær, er hann hefir gert, til þess að framleiða nýjar tegundir jurta. Leitast hann einkum við að framleiða harð- gerðar og nægjusamar tegundir, sem lifað geti í lélegum jarðvegi og gert mönnum og dýrum mögulegt að hafast við jafnvel þar, sem nú eru eyðimerkur. Við tilraunirnar notar hann jurtir víðs- vegar að af hnettinum, og hefir honum orðið töluvert ágengt. Má einkum tilnefna strandplómutegund eina og tegund af þyrnalausum kaktus. Strandplóman getur vaxið í ófrjóvum jarðvegi og óblíðu loftslagi, en ber þó ríkulega, safamikla og bragðgóða ávexti, og eru þeir miklu stærri en ávextir hinnar upp- runalegu tegundar, sem auk þess, að þeir eru smáir^ eru bæði þurrir og beiskir. Kaktusinn var Burbank í tólf ár eða meira að fást við, og er hann ennþá merkilegri en strandplóman. Burbank safnaði að sér kaktustegundum víðsvegar að, og framleiddi hvað eftir annað kynblendinga af smávöxnum og stórvöxnum, þyrnótt- um og þyrnalausum tegundum, unz honum að lokum tókst af þyrnóttum tegundum að framleiða þessa fyrnefndu þyrnalausu tegund, sem er mjög lífseig og nægjusöm að því er jarðveg og raka jarðvegsins snertir. Hún er ágætis fóðurjurt, bæði til skepnu- og manneldis og nær á þrem árum 5—6 hundrað punda þyngd. Er búist við, að hún muni á næstu áratugum breiðast út um alla jörðina, og verða ræktuð þar, sem nú er ekki hægt að rækta neitt sakir þurks. En enn sem komið er, er henni haldið í afarverði. Burbank hefir meðal annars framleitt kartöflutegund, sem mælt er, að hafi gert hina árlegu uppskeru Bandamanna 60 milj. kr. meira virði, en hún var áður. Margt annað hefur honum vel tekist; hér skal að eins eitt dæmi enn tilfært, af því það gefur góðar bendingar um, hvað gera megi: Við kynblöndun tveggja tegunda brumberjarunna, sem ekki voru ræktartegundir og báru smá ber, tókst honum að framleiða tegund, sem bar yfrin, stór og bragðgóð ber. 7. ÁGRÆÐSLA (Podning, Okulation). Svo nefnist aðferð til þess, að bæta tegundir ræktjurta, og er í því fólgin, að sproti eða blaðhnappur (óbrostinn) er gróðursett- ur á stofni annarrar tegundar, vanalega þannig, að rótin er einnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.