Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 14

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 14
90 mála sem fyr: »Þessi stúlka er systurdóttir dr. Jóns Hjaltalíns« o.s.frv. Síðan býður prestur okkur inn í bæinn, og gengum við inn löng göng, þröng og dimm, og þegar þau þraut, þá var beygt til hægri, og enn komu göng, en þau voru stutt. Prestur gekk á undan og opnaði dyr að stofu til vinstri handar. Þar var einn gluggi á móti dyrum. I'ar sá ég þá mynd, er ég aldrei gleymi. í’að var kona, sem sat á rúmi, öldruð nokkuð, en undarlegt var það, að hana kom mér ekki til hug- ar að þúa; ekki af því, að hún væri betur búin en hitt fólkið, heldur af því, að ég bar undarlega virðingu fyrir henni; göfgi og sorg blönd- uðust svo undarlega saman í andliti hennar. Hún var rauðeyg, eins og hún hefði ekki gert annað en grátið í mörg ár. Mér varð starsýnt á hana, þótt ég væri ekki nema 16 ára gömul, og gat ég ekki haft af henni augun. Hún horfði einnig mikið á mig. Stóll var við borðið og bauð hún mér sæti. Síðan spurði hún mig, hverra manna ég væri, og þá varð hún svolítið hýr, en bros lék aldrei á vörum hennar. Hvemig sem á því stóð, þá óx mér sá kjarkur, að ég spurði hana, hvort hún væri ekki prestskonan. Hún játti því, en stundi við og sagði: ;;Ég man nú tvennar æfirnar, guð gefi þér, unga stúlka, að þú ratir aldrei í annað eins raunakerfi, eins og mín æfi hefir verið«. Síð- an sagði hún mér, að hún væri systir Bjarna amtmanns Thórarensens,. en ekkja eftir sýslumann Öfjörð, og þá urðu augnahvarmar hennar enn þá rauðari og votir, þegar hún mintist á þetta, enda þótt liðin væru 33 ár frá þeim sára missi. Kannaðist ég nú við, því ég kunni þá kvæðið, sem Bjarni orti eftir Öfjörð, og kendi svo í bijósti um hana, að mig sárlangaði til að faðma þessa blessuðu raunamæddu konu; en það þorði ég ekki, því að jafnframt raunasvipnum var svip- urinn þurr, að mér fanst. í þessu bili heyrðum við gengið að stofudyrunum, og hún hætti snögglega að segja mér meir. Sú, sem kom inn þá, var dóttir henn- ar Margrét, að mig minnir, með grautardisk í hendi og mjólkurkönnu, og setur á borðið, og bauð mér að borða. í'á fór gamla konan að afsaka, hvað það væri óboðlegt, að mér væri ekki boðið kaffi; en ég sagði, að mér þætti vænt um þetta. í'á spurði dóttirin, hvar ég ætti að sofa, og varð þá andlit gömlu konunnar alt í einu gremju og rauna- legt, í því hún sagði: »Hvar gæti hún annarstaðar sofið en hérna«? Þá sagði ég: »Engan vil ég reka úr rúmi.« T’ví mér fanst, að þetta mundi vera hennar rúm. Þá sagði gamla konan: »Það verður að búa sem á bæ er títt, og guð gefi þér góðar nætur, unga stúlka,« og bað dóttur sína að láta fara vel um mig. Síðan gekk hún fram eftir stofunni, og sá ég, hve svipurinn var tignarlegur, og sagði: »Þetta hefir verið lagleg kona, þegar hún var ung.« Þá snéri hún sér snögt við, hnyklaði brýnnar og sagði: »Af hverju heldurðu það? Það er nú ekkert orðið eftir af þvt, nema þessi rauðu augu, sem eru til að fæla alla«. Svo gekk hún út, og sá ég á vanga á manni, og heyrði ég þau yrtust á, og ekki blíðlega, og lokaði hún síðan hurðinni. Sið- an bauð Margrét mér að fara að hátta, og sagðist ætla að sofa hjá mér. Þegar við vorum háttaðar, spurði ég hana, hvort nokkur hefði gengið úr rúmi fyrir mig, eða hvort þetta væri gestarúm, og eyddi hún því; en ég ítrekaði það, og gat upp á að móðir hennar mundi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.