Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Page 15

Eimreiðin - 01.05.1914, Page 15
91 sofa hér; þá brosti hún og kvað satt vera, og sagði að það væri vani, því ekki væri meira að ganga úr rúmi fyrir mig, en aðra gesti. Ég sagði, að mér félli það illa, að hafa rekið svo mædda og gamla og heiðarlega konu úr rúmi. Fór Margrét þá að verða skrafhreifin, og sagði mér ýmislegt, áður en við sofnuðum, og einnig það, að móðir sín væri því vön,að láta á móti sér um æfina, en þætti því við, að hún væri oft angurvær. Morguninn eftir fór hún á fætur og færði mér kaffi. Fylgdar- manninn hafði ég ekki séð siðan um kveldið; en nú birtist hans blíða andlit í dyrunum, og spurði mig með mikilli auðmýkt og þéringum, hvort ég gæti farið að koma af stað. Þá hló Margrét, ég held að hans kátlegu tilburðum, og sagði, að ég mundi ekki fara, fyr en ég væri búin að borða. Síðan borðaði ég þarna ein. Nú var ekki ann- að eftir en kveðja og þakka fyrir greiðann, en ég vildi fyrir hvern mun kveðja gömlu konuna og prestinn; en það var nú ekki auðhlaup- ið að því, því það var líkast því sem mér ætti ekki að auðnast það. En þangað til var ég að skygnast um í þessum dimmu göngum, að ég fann stiga, og gekk ég upp lúkugatið, þá kom skíma, og nú sá ég undir eins, hvers vegna ég mátti ekki kveðja, því súðin hékk niður og torfusneplarnir, áreftið myglað og fúið. I einu orði sagt, ég hefi al- drei séð önnur eins mannahýbýli. Inst við gluggaholuna í þessari bað- stofu sat prestskonan á rúmfleti. Mér varð ilt við þessa sjón, gekk til hennar, og þakkaði fyrir greiðann, og sagði: »Sofið þér vanalega hérna?« »Það er nú ýmist«, sagði hún, og var mjög döpur í bragði, og bað mig að flýta mér ofan, áður en mér yrði ilt af lyktinni, því ég væri víst vön öðru; ég sagði, að mér væri ekki vandara um en henni; þá sagði hún: »það sem verður að vera, viljugur skal hverbera.« Þar sat margt fólk á rúmum sínum og var að borða úr öskum. Presturinn sat við borðið undir glugganum og var að borða úr skál. Síðan kvaddi ég, en innilegast gömlu konuna. Ekkert fékk ég að borga fyrir greið- ann, en barni, sem þar var, rétti ég ríkisdal. Þegar ég fór á bak, kom prestur út og var þá skrafhreifinn. Síðan fórum við af stað. Þegar við vorum komin spölkorn út fyrir túnið, sá ég að Gísli var fjúkandi reiður, og sagði, að ég hefði víst átt góða nótt á þessu fallega prestssetri, og játti ég því, og sagði, að það hefði farið vel um mig; en nú var ekki að tala um þéringar. Ég spurði hann, hvað hon- um þætti; hann sagði, að það væri hreint út »kort sagt«, að það hefði verið sú versta nótt, sem hann hefði haft á æfi sinni, og bætti því við: »Það bitnar ekki á þér«. Nesti höfðum við nóg, en það var sjaldan tekið upp, vegna kaffidrykkjanna á bæjunum; en nú sagðist hann heimta að fá að éta, og gerði hann það. Þegar hann var búinn að éta, héldum við áfram nokkra stund, unz hann sagði: »Mikil óvenja, nú ríð ég ekki lengur kaffilaus.« Ég, eins og vant var, maldaði í móinn og vildi halda áfram, unz hann lagði lykkju á leið sinni, að mér virtist; þótt ég enga leið vissi, þá fanst mér það samt; þá segir hann: »í Tandraseli fáum við gott kaffi, því þar hefi ég drukkið bezt kaffi á æfi minni.« Þá sagði ég, að mig langaði ekkert í kaffi, og við kæmumst seint suður í Reykjavík, ef við færum heim á hvern bæ til þess. Hann gegndi mér engu, en reið áfram í fússi þegjandi,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.