Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 18

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 18
94 úr og ofan í gegn. Þetta voru þá fötin, sem Anna átti að hafa með sér í Víkurferðina. Síðan hösvaðist »maddaman« strax um kveldið, að þvo vasaklúta m. fl. í þá daga hefir víst bærinn í Saurbæ veiið með beztu bæjum. Inngangurinn voru löng og breið göng, síðan var beygt til vinstri inn í lítinn svefnklefa, og úr honum inn í annan svefnklefa, nokkuð stærri; síðan kom stofan, ekki alllítil; hún var máluð dökkblá, eins og tízka var í þann tíð, og hún var eina herbergið í öllum bænum, sem ekki þurfti að þvo með sandi (»skúra«). í’egar ég var búin að skoða allan bæinn hátt og lágt, lét ég undrun mína ( Ijósi við »madd- ömuna«, hvernig hún færi að hafa svona hvítar þiljur, og hvort bærinn væri nýr, og neitaði hún því, en sagði það væri af því, að hún léti »skúra« allan bæinn bæði haust og vor. Og skárra er það nú verkið, hugsaði ég, að »skúra« með sandi bæði haust og vor stóran bæ. Ég fór upp aftur að skoða baðstofuna betur, til þess að geta dáðst að þrifnaðinum á þessum bæ. Hár stigi var upp ( baðstofuna og hann »skúraður«. Þegar upp var komið, var baðstofan bæði há og breið, og svo hvít og vel umgengin, eins og hún væri nýmáluð, og gat ég varla slitið mig þaðan, hún var svo falleg. Daginn eftir var þykt loft, og fór prestur að tala um, hvort þessi dagur yrði til enda tryggur, og hann liti út fyrir að gera sunnan ófæru. Samt sem áður fórum við af stað, og Anna dóttir prestsins með okk- ur. Svo héldum við áfram eins og leið liggur, en þegar við vorum komin í nánd við bæinn á Þyrli. þá skall hann á með sunnanstorm og rigningu. Gísli vildi eigi fara fram hjá Þyrli, heldur skipaði okkur að ríða þangað heim, en Anna sagði, að það væri auma kotið. Gísli hélt, að það væri lakur skúti, sem ekki væri betri en úti, og sagðist ekki taka það í mál, að fara í slíku veðri með 2 kvenmenn fram hjá bænum, og við mættum þakka guði fyrir að komast undir þak. Pá sagði Anna, að betra væri að snúa aftur að Saurbæ, en Gísli gegndi því ekki, og reið heim og við á eftir. Þegar við komum að bænum, þá kom út maður, stuttur og stutt- aralegur í viðmóti, og spurði okkur, hvert erindi við ættum hingað, og sagði Gísli þá, hvort honum þætti það »forsvaranlegt« með 2 kven- menn, að halda áfram í slfku veðri; en bóndi sagði, að það væri ekki svo langt að Saurbæ, að komast þangað aftur, en segir: »Eigi að síð ur skuluð þið koma inn, en það er ekki svo vel hýst hjá mér, að ég geti hýst nokkurn mann.« Síðan gengum við Anna inn, og bóndi á undan, inn kolsvört, mjó og löng göng. f’að skal hér tekið fram, að formáli Gísla dugði hér ekkert í þetta skifti, því bóndi skeytti því engu. Við komum inn í baðstofu með fjalagólfi, og nýlegri súð og glugga, með borði undir. Þegar ég fór að litast um, þá sá ég holds- veika konu sitja þar á rúmí, og unglingsstúlka hjá henni, og annað fólk var ekki í baðstofunni. Þessi konu-aumingi var ósköp maéðuleg, en vildi vera svo góð við okkur, og fór að tala um, að það væri leitt, að geta ekki bugað neinu að okkur. En þá greip mig sú fjarskaleg hræðsla, ef við yrðum nú að njóta nokkurs hjá holdsveikri konu, því foreldrar mínir ítrekuðu oft og margsinnis fyrir börnum sínum, að forð- ast sem mest holdsveikt fólk, og var það þó ekki vanalegt í þá daga; en þau voru á undan sinni tíð í því sem öðru. Nú dundi stormurinn,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.