Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 19

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 19
95 svo bærinn skalf, og þetta fanst mér nú ekkert skemtilegt, að sitja þarna hjá holdsveikri konu, og ekki mátti ég hugsa til þess, að gista þar um nóttina. Gísli var að koma inn við og við, og leit undarlega á okkur, og það var auðséð á útliti hans, að hann langaði í kaffi; en það var nú ekki í handraðanum á þessum bæ, því það var ekki til. Konan var altaf að tala um það, að verst væri að geta ekki bugað neinu að aumingja stúlkunum, og segir við þennan ungling, sem hjá henni var: »Er ekkert eftir af draflanum þeim í morgun?« Stúlkan tekur ask ofan af hillu, og biður konan stúlkuna að láta úr askinum í »spulkomu« ; hún gerir það. Nú fanst mér fara að vandast málið, því nú áttum við líka að fara að borða mat úr höndunum á holds- veikri konu, og hugsaði ég undireins upp ráð, að ég skyldi segja, að ég borðaði aldrei drafla. Hún trúði því ekki, »en blessaðar stúlkumars, sagði hún, »veðurbarðar, verða að fá eitthvað gott«, og stúlkan kem- ur með þetta til okkar á rúmið, sem við sátum á. Þá sé ég, að þetta er rauðseyddur drafli, sem mér þótti mata beztur. Anna fór að bragða á, en aumingja konunni hefir víst sýnst, að það væri viðbjóður í okkur, og segir: »Ykkur er óhætt að borða, því ég hefi ekki eldað það.« Ég hafði ekki brjóst til að styggja þennan krossbera, tók skeið- ina og fór að bragða á. Draflinn var dísætur, svo vel var hann seydd- ur. Sulturinn fór nú að skera okkur, því nú var komið undir mið- aftan, svo við sötruðum dálítið af þessu. Síðan fórum við út að gá til veðurs, því ég hafði ekki eirð inni. Veðrið var altaf að versna, og komið rok á Hvalfirði. Já, þessi t’yrill, sem er rétt fyrir ofan bæinn, hann gerði mig mjög hrædda. Marga hnúka hefi ég séð um æfina, og ég er alin upp við Svartahnúk á Grundarmön, en svona hræðilegan hnúk hefi ég aldrei séð, því maður getur ekki búist við öðru, en hann detti þá og þegar í höfuðið á manni; því manni sýnist Þyrillinn hanga á lítilli taug, og það bætti nú ekki úr skák, að rokið var svona mikið, því ég hélt hvorki meira né minna, en að rokið mundi skella honum yfir bæinn. Heimskuleg var hugsun- in og barnaleg, enda var ég á barnsaldri. Nú sá ég Gísla úti, og sagði honum, að ég vildi fara af stað, en hann var stóreygur, og spurði: hvort ég væri vikin frá »forstandinu«, því hann sagðist ekki fara með nokkurn kvenmann út í slíkt veður. Snéri ég þá við og fór inn í bæ, sem mig hrylti þó við. Þá heyri ég að bóndinn segir við Gísla: »Það er alfært karlmönnum.« Rign- ing var nú engin, en komið öskurok. Nú tala ég um þetta við Önnu, og bið hana að hjálpa mér og herða á Glsla að fara af stað. Gísli taldi á öll tormerki, en bóndinn ýtti undir, að farið væri. Anna hjálp- aði mér ekkert, en félst á það, sem Gísli sagði. Nú kom bóndinn inn, og ég fór út til Gísla, og segi honum hiklaust, að ég fari af stað, hvort sem hann komi eða ekki; en ekki hefi ég séð mann verða reið- ari, en hann varð þá, og þúaði hann mig nú illilega, en engar þér- ingar viðhafðar. Síðan þeytist hann til hestanna, og söðlar þá í ein- hverju ofboði, þegjandi, og við á bak. Báðar höfðum við vaxdúks- kápur. Nú riðum við dálítinn spöl suður fyrir túnið; á þeirri leið heyrðist ekki annað til Gísla en þetta: »Mikil óvenja! Mikil óvenja!« og •> það er ekki sopið kálið, þó í ausuna sé komið«. f’á jókst rokið T
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.