Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 37

Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 37
ur yðar og vinir, komist í það öngþveiti, að þurfa að leita sér hælis á hælinu. Pá getið þið eða þeir, stigið inn fyrir þröskuld þess með þeirri þægilegu tilfinningu, að þér hafið látið eitthvað af hendi rakna til að viðhalda þeirri stofnum, sem þér leitið húsa- skjóls hjá og bóta meina yðar. MEÐUL. En þægilegast væri nú samt, að þurfa ekki af fara á neitt heilsu- hæli, — að hægt væri bara að senda til læknisins eða í lyfjabúðina eftir óbrigðulum meðulum við berklaveiki. En því er nú ver og miður — þau meðul eru ófundin enn, og verður e. t. v. langt að bíða þess, að þau finnist. Ekki svo að skilja, að ekki hafi verið reynt til að finna þau, og sé sennilega altaf verið að reyna til þess. Maður er nefndur Robert Kock. Hann var þýzkur læknir, heims- frægur fyrir rannsóknir sínar á ýmsum sjúkdómum, en einkum þó fyrir það, að hann fann fyrstur manna berklagerilinn árið 1882, og fyrir rannsóknir sínar á berklaveikinni yfir höfuð. Árið 1890 gaus upp sá kvittur, að Kock væri búinn að finna upp óbrigðult meðal við berklaveiki. Ég var þá í Kmhöfn og man, hvílíkan fögnuð og hvílíkar vonir fregn þessi vakti. Fólk þyrptist til hins fræga manns bæði sér til heilsubótar og til að fræðast af honum um hið nýfundna meðal. Einn af prófessorum læknadeildar háskólans í Kmhöfn var sendur til Berh'nar, til að kynna sér þessa uppgötv- un o. s. frv. En vonbrigðin komu skjótt og urðu mikil. Blaða- menn höfðu hent á lofti þessar rannsóknir Kocks og gert úr þeim annað og miklu meira, en hann ætlaðist til — útbásúnað það sem óbrigðult meðal, þar sem að eins var um óreynda eða líttreynda tilraun að ræða. Meðal þetta, sem nefnt er tuberkúlín, svaraði sem sagt alls ekki til hinna miklu vona, er menn gerðu sér um það; það kom meira að segja brátt í ljós, að mörgum sjúklingum versnaði við það, og þegar svo 2—3 sjúklingar dóu skyndilega við notkun þess, þá var mönnum öllum lokið. Kock voru valin hin verstu smánaryrði í. blöðum, kallaður svikari, »húmbúggisti« o. þessh., líkt og Cook heimskautsfari síðar. En tilraunum Kocks var haldið áfram í kyrþey, og ekki leið á löngu, áður en túberkú- línið hans komst til vegs og virðingar, þótt nokkuð væri það á annan hátt, en til var stofnað í fyrstu. Pað sýndi sig sem sé, að þegar því var spýtt inn í berklaveika menn eða skepnur, þá jókst h'kamshiti þeirra um stund, en væri því spýtt inn í heilbrigða

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.