Eimreiðin - 01.05.1914, Page 44
120
hérumbil 2 kr.). Fyrir auga þræls skal hann borga eigandanum
hálf þrælsgjöld, hérumbil 10 sikla. Ef leysingi slær frjálsborinn
mann, þá skal berja hann 6o högg með svipu úr uxahúð á al-
mannafæri.
Ef einhver drepur frjálsborna konu, þá skal drepa dóttur
vegandans. Fyrir víg leysingjakonu skal vegandinn borga 30
sikla, en fyrir víg ambáttar 10 sikla.
Læknir fær í laun fyrir holdskurð (operation) 10, 5 eða 2
sikla, eftir því, hvort hann holdsker frjálsborinn mann, leysingja
eða þræl. Ef sjúklingurinn deyr eftir holdskurðinn, þá skal
höggva báðar hendur af lækninum. En ef þræll deyr á þennan
hátt, þá sleppur læknirinn með að gefa eigandanum annan þræl.
Móse setur sömu hegning fyrir öll morð, að öllu leyti líf
fyrir líf. Eitt mannslíf er eigi minna vert en annað.
I 129. gr. segir Hammúrabí um prælana, að sá, sem slær
auga úr þræli, skuli gjalda eigandanum hálf þrælsgjöld.
En hvað verður, ef eigandinn slær þræl sinn? Um það
segir Hammúrabí ekkert. Hugsunin er sjálfsagt sú, að eigandinn
hafi full eignarráð yfir eign sinni. En Móse segir (2. Mós. 21,
26—27), að sá, sem slær auga eða tönn úr þræli sínum, skuli
gefa honum frelsi fyrir augað eða tönnina. Hjá Móse á þrællinn
rétt á sér, þó hann sé eigi jafnrétthár og frjáls maður. Hjá
Hammúrabí er þrællinn réttlaus. Frá þessu er aðeins ein und-
antekning: Ef frjáls maður er seldur í þrældóm sakir skulda, þá
skal hann vera frjáls á 4. ári, og eigandinn ber ábyrgð á lífi
hans til þess tíma.
Móse segir, að allir ebreskir þrælar skuli fara frjálsir á 7.
ári. Og húsbóndinn skal eigi láta þrælinn fara tómhentan frá
sér. »0g minstu þess, að þú hefir verið þræll í Egyptalandi«
(2. Mós. 21. 2—10 og 5. Mós. 15. 12—18).
Hammúrabí leggur þunga hegningu við að hjálpa þrælum
til að strjúka. Hann virðist telja sjálfsagt, að þrælunum líði illa.
En Móse telur sjálfsagt að þeim líði svo vel, að það geti jafnvel
borið við, að þrællinn vilji heldur vera hjá húsbónda sínum, en
verða frjáls maður og fara burtu (2. Mós. 21. og 5. Mós. 15.).
Hammúrabí vill láta hjbnabandið vera einkvæni, en gefur
manninum leyfi til að hafa frillur. Hann bannar hjónaband milli
foreldra og barna, en eigi milli systkina eins og Móse.
Giftingin er brúðkaup. Brúðguminn gefur gjafir og borgar