Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 47

Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 47
123 Hammúrabí fylgir þessu fram bókstaflega. Ef einhver drepur son manns síns, þá skal drepa son morðingjans. Móse víkur til hliðar og dregur úr. Hann bannar að drepa son í stað föður (5. Mós. 24, 16). Endurgjaldsrétturinn gilti auðvitað eins fyrir embættismanniun eða þann, sem átti að hegna brotinu. Að öðru leyti eiga menn ekki að fylgja rétti þessum, segir Jesús (Mt. 5, 39), heldur miklu fremur: «Eins og þér viljið að mennirnir breyti við yður, eins skuluð þér og breyta við þá«. (Lúk. 6, 31). Hegningin sjálf var hörð og ströng hjá Hammúrabí. 33 af- brot hafa dauðahegningu í för með sér. Og 13 þeirra fylgir auka- hegning (píslir): grafinn lifandi, kastað í vatn, börn vegandans drepin, lagður á steglur. I 133. grein stendur, að kona, sem drepið hefir mann sinn sakir annars manns, skuli lögð á steglur. Einnig er nefnt, að höggva hendur af, skera úr tungu, skera af eyru og rífa úr augu. Vínsölukona, sem selur vín sitt of dýrt, skal láta lífið. Henni skal í vatn kastað. Ef þetta er rétt þýð- ing á 108. grein, sem annars er óglögg, þá er það einkennilega hörð hegning. Hammúrabí mælir hegninguna að miklu leyti eftir skaðanum, án þess að spyrja um hugsun eða tilgang. Pað virðist vera ósann- gjarnt, að læknirinn missi hendurnar fyrir einn einasta holdskurð, sem mishepnast. Pað er og ósanngjarnt, að húsasmiðurinn láti lífið, ef húsið, sem hann hefir bygt, hrynur og verður mönnum að bana. í 106. grein er ein undantekning frá þessu. Ef einhver verð- ur öðrum að skaða í áflogum, þá getur hann sagt: Æggerðiþað ekki viljandi«. Hann sleppur þá, en læknishjálp verður hann að borga. Móse gerir glöggan mun á morði og voðavígi. Morðinginn á að láta lífið. En sá sem vinnur voðavíg, sleppur, ef hann kemst til griðastaðanna (4. Mós. 35, 11—12). Dauðahegning eftir Móse-lögum var grýting (5. Mós. 13, 10). Eftir Hammúrabí-lögum voru dauðadæmdir menn líklega höggnir með sverði. Ef hegningin er hýðing, þá eru vandarhöggin hjá Hammúrabí upp að 60, en 40 hjá Móse. Seinna voru þau 39 hjá Gyðingum (5. Mós. 25, 2—3; 2. Kor. 11, 24). Hammúrabí virðist hafa yfirburði yfir Móse, að því er mannhefndir snertir. Hver á að láta fullnægja dómnum, þegar

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.