Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Page 74

Eimreiðin - 01.05.1914, Page 74
150 og blessuðu hann í hjarta sínu. En hvenær sem hann mintist á Ketil prest, var eins og alt umhverfðist, eins og augu þeirra, sem rétt áður Ijómuðu af mannkær- leika, sindruðu af gallbeiskju og óslökkvandi hatri. — Loks kemst hann heim að Borg, þar sem hann hittir bróður sinn, konu sína, son sinn og barnsmóður, sem öll fyrirgefa honum — og svo deyr hann sáttur við alla og sannfærður um fyrir- gefningu dómarans mikla og gæzkuríka. Hér er svo vel farið með fagurt efni, að slíkt gerir enginn nema reglulegt skáld. Enda hefir þessi bók G. G. vakið almenna athygli og hlotið alment lof allra ritdómara, bæði í Danmörku og Noregi, og það svo, að vér minnumst varla að hafa séð jafneinróma lof um nokkra bók eftir jafnungan höfund. Vér höfum átt kost á að sjá sæg af ritdómum um hana, en skulum láta oss nægja að tilfæra einstöku setningar úr sumum þeirra. í hinu þjóðkunna norska tímariti »For Kirke og Kultur« (io. h. 1913) segir svo um »Gest eineygða« : »Síðan á blómaárum Björnsons hefir jafntígið göfugmenni ekki verið skapað í norrænum listum. Ég þekki engan, sem ég gæti jafnað honum við nema biskup *Bien Venua. í sögu Viktor Hugós »Aumingjarnir«. Eins og þá bók geta allir les- ið Gest eineygða, jafnt þeir, sem mest þykir varið í »spenninguna« og ást hafa á æfintýrum, eins og þeir, sem vilja í kyrþey samlaða sig göfuglyndi og spekings- anda, eða þeir, sem njóta vilja frábærrar skáldsnildar. A sálarspjöld þeirra allra mun Gestur rista rúnir, sem ekki mást af aftur bráðlega.« í »Köbenhavn« segir skáldið Sophus Michaélis, að pílagrímsgöngu Gests sé lýst með svo miklu hugarflugi og tilfinningaafli, að það minni á Viktor Hugó. — »Berl. Tid.« segir að G. G. hafi tekið sér Hall Caine til fyrirmyndar, og ekki aðeins tekist að jafnast við þessa stóru fyrirmynd, heldur meira að segja komist fram úr henni. — I »Riget« segir rithöfundurinn Louis Levi: »Séu hin tvö bindin af »Sögu Borg- arættarinnarc jafnkostamikil og »Gestur eineygði«,— ég þekki þau því miður ekki,— þá er hér um svo tilkomumikinn rithöfund að ræða, að hann skapar nýstreymi í bók- mentunum. Eitthvað í áttina til Selmu Lagerlöf — sannnorrænan höfund með nýskapandi frumleiksgáfu. Ekki neinn mannvitshöfund eins og t. d. Strindberg og Ibsen, heldur tilfinningaskáld, sem getur lýst kveinstafaþyt Yggdrasilsasksins, eftir að rætur hans hafa teygt anga sína djúpt niður í jarðveg kristindómsins.« Ætla mætti að íslenzku bóksalarnir flýttu sér að birta löndum sínum þessa bók. V G. JÓN SVENSSON: NONNI. Erlebnisse eines jungen Islánders, von ihm selbst erzáhlt. Með 12 myndum. XII 356 bls. Freiburg 1913 (Herdersche Verlags- handlung). Verð: M. 3,80, ib. M. 4.80. Hann ætlar að reynast Islandi þarfur maður, hann séra Jón Sveinsson landi vor, kaþólski presturinn, sem Eimr. hefir svo oft haft tækifæri til að minnast á. Eftir að hann í meira en 20 ár hefir verið kennari við kaþólskan skóla í útjaðri Kaup- mannahafnar, ei hann nú fluttur til Hollands og seztur þar að á gömlu höfðingja- setri, Exaten, þar sem hann getur varið nær því öllum stundum til ritstarfa. Og þegar litið er til þess, hve miklu hann gat afkastað í sínum fáu frístundum frá skólakenslunni, má búast við, að ekki verði minna um vert, er hann hefir nú fengið svo fullkomið næði til ritstarfa. Og alt, sem hann ritar, miðar til að auka þekkingu útlendinga á Islandi, og er jafnframt þannig ritað, að fólkið er sólgið í að lesa það. Og nú ritar hann á heimsmáli, þýzku, sem talað er og lesið af mörgum tugum milj- óna. ?etta er ekki lítilsvert fyrir oss, og er sá enginn íslandi týndur sonur, er

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.