Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Page 20

Eimreiðin - 01.09.1915, Page 20
176 samhliða því, að hún endurkaus Ól. Rós., til að stofna bindindis- félög, er St. St. ekki vildi stofna alþjóðabannfélög! Pað er oft svo. að menn hugsa ekki til hlítar gerðir sínar. En þó það líti svo út, sem ekki sé hagnaður að þessari bindindisfélagastarfsemi, þá er enginn efi á því, að hún, og yfirleitt starfsemi Ól. Rós., gerði það að verkum, að Indriða Einarssyni varð jafnvel ágengt í starfi sínu sem stórtemplar, og raun varð á. En það, sem þó einna mest mun hafa styrkt Regluna — eða bindindismálið —, var »Prestabindindið«, er herra Hallgrímur Sveinsson biskup stofn- aði fyrst á þessum árum. I það gengu flestir prestar landsins, og síðan hefir það stöðugt verið svo, að prestarnir hafa verið bezta stoð bindindismálsins, og starfað af alúð fyrir það mál. En engin íslenzk embættisstétt hefir jafn-mikil áhrif og prestarnir; það er alkunna. Allir muna eftir erfisdrykkjunum íslenzku, þar sem hver gestanna drakk öðrum meira. Gestur Páls- son lýsir þeim í einni af sögum sínum. Erfisdrykkjur þessar voru hinn mesti ósómi, hvernig svo sem á þær er litið, og ég býst ekki við, að nokkur and-banningur vilji af fullri alvöru halda taum þeirra. fessi ósiður hvarf á hérumbil 2—4 ára bili í Skagafirði fyrir ötula framgöngu prestanna þar. Man ég einkum eftir, að faðir minn heitinn sem prófastur starfaði mik- ið að því, og sendi út umburðarbréf um það um prófastsdæmið. Hreyfingin komst þaðan í önnur héruð landsins, og nú mun ósið- ur þessi víðast horfinn fyrir nokkrum árum. Og þegar bannlögin komu til atkvæðagreiðslu, voru líka prestarnir bezta stoð þeirra og stytta, og meðal þeirra ofanritað- ir prestar, er allir hafa starfað mikið fyrir málið. Fyrstu ár Reglunnar var séra Magnús Björnsson prófastur á Prestsbakka sí- starfandi, og það væri sannarlega synd að segja, að hann hefði legið á liði sínu hin síðari ár. Reglan á altaf vísan talsmann, þar sem hann er. Einar Pórbarson prestur í Hofteigi og Sigurbur •..'.. -ííi2 19. Sera Einar Þórðarson.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.