Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Blaðsíða 64

Eimreiðin - 01.09.1915, Blaðsíða 64
220 í bók sinni »Hestar og reiðmenn á íslandw heldur herra George H. F. Schrader því fram, að milliliðurinn, kaupmaðurinn, hverfi smám- saman úr sögunni, og álítur það vera rétt. En hann styðst þó varla við eigin reynslu í þeim efnum, heldur virðist hallast að kenningum annarra, sem um það hafa ritað. f’að er líka hægt að setja þessa kenningu svo fram, að hún geti litið allvel út, en hvort hún er fram- kvæmanleg, er nokkuð annað. Herra Schrader segir, að stjórnin hafi sýnt, hvað þessi regla sé happasæl, þegar hún leigði norskt gufuskip til að sækja vörur beint til Ameríku. En í rauninni sannar þetta atvik mjög lítið, og millilið- irnir fækka ekki neitt við það; því í stað kaupmannsins kemur hér landstjórnin. En þó að landstjórnin hafi útvegað kornvörur til lands- ins í þessu sérstaka tilfelli, þá er enganveginn sýnt, að hún geti ann- ast alla verzluo landsins. En ef hún gerði það, þá gæti hún ekki annast stjórnarstörfin; svo mundi hún og þurfa að afla sér nokkurrar sérþekkingar um verzlunarefni, sem hún ekki hefir nú, og heldur ekki er hægt að ætlast til, að hún hafi. Sama verður og ofan á, þegar kaupfélög koma í stað kaup- manna. Milliliðirnir fækka ekki við það, því í staðinn fyrir kaup- manninn, sem á verzlunina, kemur kaupstjórinn, sem stjórnar verzl- uninni fyrir kaupfélagið, og hann þarf að hafa kaup fyrir starf sitt. Hér er aðeins sá munur, að þegar verzlunin græðir meira en það, sem öllum kostnaði nemur við rekstur hennar, þá skiftist ágóðinn milli þeirra, sem eiga verzlunina, í staðinn fyrir að ágóðinn lendir í vasa kaupmannsins. En þegar aftur verzlunin ekki gefur neitt af sér, eða ber sig alls ekki, þá lendir auðvitað tapið á þeim, sem eiga verzlunina, sem annars mundi hafa lent á kaupmanninum. Milliliðirnir fækka ekkert. Þegar kaupfélög eru vel trygð með nægilegum höfuðstól og góðu fyrirkomulagi, og þeim er vel stjórnað á allan hátt, þá eru þau, ef til vill, beinlfnis haganlegri fyrir íbúa landsins en kaupmenn. Þó ber ekki að gleyma því, að efnuð meðalstétt er styrkur hverju landi; og það sýnir sig í öllum löndum, að duglegir kaupmenn geta þrifist við hliðina á kaupfélögum, jafnvel þó þeir verði harðar úti með skattgreiðslur o. fl. En eðlilega fækkar þeim að sama skapi sem kaupfélögum fjölgar. Eftir reglunni: að »kaupa að framleiðanda«, ættu nú kaupfélögin, eða landsmenn, að kaupa iðnaðarvörur í verksmiðjunum, þar sem þær eru framleiddar, kornvörur hjá bændum í Ameríku, Rússlandi og öðr- um kornlöndum, kaffi hjá bændum í Brasilíu o. s. frv., til þess að kaupa alt hjá fyrstu hendi. En þetta er óframkvæmanlegt. Enskar verksmiðjur selja ekki minna en allmarga stranga af hverri vefnaðartegund. Verksmiðjunar skifta vinnunni þannig milli sin, að hver verksmiðja býr til aðeins mjög fáar tegundir, sumar kannske aðeins eina. Það eru því aðeins stærstu verzlanir er- lendis, sem geta keypt beint að enskum verksmiðjum, en engin ein verzlun á íslandi er svo stór. Hér þarf því milliliðurinn að koma til, stórkaupmaðurinn, sem kaupir af verksmiðjunum í stórum stíl og selur kaupmönnum og kaupfélögum. Hann þarf að kaupa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.