Eimreiðin - 01.09.1915, Blaðsíða 55
21 I
»Reynist þau, á móti von vorri, er fram í sækir, ekki vel, þá er
sjálfsagt að lagfæra þau, og breyta þeim svo, að þau komi að
gagni. En hinir tilnefna ýmsa áratölu, og eru þar ekki sammála.
En afnám eða breytingar fá engan byr fyrstu árin. Pað er
trúa mín.
það er lcomin reynsla fyrir því í fylkjum þeim, er hafa
bannlög í Bandaríkjunum, að jafnskjótt og fylkin fá bannlög,
þá hnignar bindindisstarfseminni. Stundum er það þó aðeins
fyrstu árin. Templarar á íslandi hafa reynt hið sama. Pegar
litið er á meðlimafjölda þeirra, þá hefir hann verið eins og sýnt
er í skýrslunni á næstu blaðsíðu.
Eins og sést af þessari skýrslu, þá hefir meðlimum Regl-
unnar fækkað talsvert síðustu árin. En síðan 1913 hefir lítið
eða ekkert fækkað. Vitanlega eru það bannlögin, er eiga frum-
orsökina til þessa. Meðlimirnir segja, að þeir hafi ekkert að
gera með það, að vera í félaginu, þegar hvergi fáist lengur vín,
og að þeir séu jafn-reiðubúnir til að starfa fyrir bannmálið, ef
þörf krefji, eftir sem áður, og eigi jafnvel hægra með það.
Og því verður ekki neitað, að utanreglumenn hafa í einstöku til-
fellum styrkt bannmálið meira og betur en nokkur templar, og
eiga stundum hægra með það. Það hlýtur því að reka að því,
að Reglan taki eitthvert annað mál á stefnuskrá sína samhliða
bindindismálinu. Raunar eru þar ýms fleiri mál; en hvert þeirra
eigi að sitja í fyrirrúmi, um það verður rætt og ritað næstu árin
innan Reglunnar. Á alþjóðamóti templara í sumar var alþjóða-
yfirstjórn hennar falið að íhuga það, og gera tillögur um það
efni á næsta alþjóðaþingi, er verður 1916 í Minnesóta. Annað,
er kunnugir taka eftir, er það, að fyrstu 2—4 árin, er hver nýr
stórtemplar situr að völdum, þá er framför meiri eða minni inn-
an Reglunnar. Pað er áhugi hans, hans óþreyttu starfskraftar;
hann blæs lífi og fjöri í aðra. En svo kemur þreytan, framförin
hættir, og það tekur við kyrstaða, eða jafnvel afturför. Petta,
mér liggur við að segja lögmál, hafa fleiri gott af að athuga.
Pað kemur víðar fram í félagslífinu, ef menn gefa sér tóm og
ráðrúm til, að gæta að því.
Árin 1909—11 var stjórn Reglunnar að mestu óbreytt, en
1911 er stjórninni gjörbreytt. Pá verður stórtemplar Jón Pdlsson
bankaféhirðir, Jón Árnason ritari og frú Guðrún Jónasson yfir-
maður ungtemplara. Árin 1911—13 fækkaði meðlimum Regl-