Eimreiðin - 01.09.1915, Blaðsíða 62
2l8
Hið áttunda eru lestrarfélög, er Reglan hefir víðsvegar
gengist fyrir að væru stofnuð, annaðhvort fyrir alla, utan Reglu
og innan, í sveitinni (svo hefir það oftast verið), eða þá fyrir
templara einvörðungu.
Hið níunda, sem nefna má, er, að templarar í Rvík árið
1906 keyptu »Hótel ísland«, er þeir tóku við 1. jan. 1907. Pó
að þetta fyrirtæki hafi orðið alt annað en féþúfa fyrir templara,
þá er enginn efi á því, að það studdi þá mjög í bindindisstarf-
semi þeirra, og jók álit þeirra. Og kunnugt er bæði mér og
öðrum, að til eru þeir menn í Rvík, sem hættu að drekka,
er þeir mistu »stofnknæpuna« sína. Og drykkjuskapur sjó-
70. Halldóra Hinriksdóttir. 71. Aðalbjörn Stefánsson.
manna og ferðamanna um lokin hefir ekki verið jafnmikill
síðan.
Að mörgum fleirum málum og í fleiru tilliti hefir Reglan
stutt að viðgangi og heillum þjóðfélagsins, auk þess, að hún
hefir breytt skoðun manna á drykkjuskapnum. Hún .hreyfði
fyrst sparimerkjafyrirkomulaginu (1906), er síðar komst á við
barnaskóla Rvíkur. Og fleiri málum hefir hún hrundið í
framkvæmd, — auk skemtifélaga, er hafa starfað í skjóli
hennar.
Hvernig saga Reglunnar verður hin næstu 30 ár, eða
hverju hún fer aðallega að starfa að, skal ég engu um spá
eða leiða getur að. En víst er um það, að þeir, sem á
komandi árum bera merki Reglunnar, verða að starfa af
kappi, áhuga, festu og trú á málefni sínu, ef þeim á að