Eimreiðin - 01.09.1915, Blaðsíða 21
'77
Gunnarssoti prófastur í Stykkishólmi hafa og starfað mikið fyrir
Regluna, ásamt fjölda annarra, er sumir hverjir eru nefndir á
öðrum stöðum í þessari ritgerð.
En mest af starfi þessara ára mun hafa verið fólgið í þvi,
að reyna að fá einstaka kaupmenn til að hætta að flytja áfengi
til landsins, og til að endurskoða á ný löggjöfina. Störfuðu
templarar þá að því, að reyna að fá héraðasamþyktarbann, og
voru lögð frumvörp fyrir alþingi um þau efni. En þau náðu ekki
fram að ganga. Pað var, eins og útbreiðslan, aðeins undirbún-
ingur undir síðari ára sigur.
Pó að St. St. væri að starfa að þessum lögum, þá hefir að-
•2*
a
21. Séra Sigurður Gunnarssun.
flutningsbann þá tyrst, eða 1893, komist alvarlega á dagskrá.
Olafur Rósenkranz ritar sérstakan kafla um það í skýrslu sinni
'893, og er það í fyrsta sinn, sem það er gert, enda ekki gert
síðan, fyr en Þ. J. Thóroddsen kemur til sögunnar. Ólafur ritar
meðal annars:
sTað ætti öllum að vera kunnugt, bæði utan Reglunnar og
innan, að takmark vort góðtemplara í bindindismálinu er algjört
bann gegn tilbúningi, innflutningi og sölu áfengra drykkja til
drykkjar. Sama takmark hljóta allir sannir bindindismenn að
hafa, því að öðrum kosti sækir í sama horfið enn, eins og
áður fyrir hinum gömlu bindindisfélögum, að bindindið verð-
ur aðeins kák, gildandi fyrir einstaklinginn, en ekki fyrir
þjóðina, og afleiðingin sú, að alt lendir í sama sukkinu og
áður.
20. Jón Jónsson læknir.