Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Page 24

Eimreiðin - 01.09.1915, Page 24
i8o Annar maður, er þá átti sæti í framkvæmdarnefndinni, var Jón Jónsson, læknir á Blönduósi, er frá fyrstu tíð Reglunnar hefir verið ötull meðlimur hennar og oft farið regluboðunarferðir. Hinn þriðji, er þá fyrst átti þar sæti, var Þorvaróur Porvarbarson, prent- smiðjustjóri, og má hiklaust telja hann meðal þeirra manna, er hafa rnarkað nafn sitt með stóru letri í sögu bindindismálsins heima. Einkum hefir hann beitt sér fyrir blaðmálin; hann varð fyrstur til að hreyfa því, að St. St. gæfi út barnablað. Pað var 1897, og fékk hann því framgengt, að það varð samþykt, og St. St. tók að gefa út barnablaðið »Æskan«., er síðan hefir komið út, og St. St. er enn eigandi að. Og tvisvar hefir hann verið útgef- 22. Borgþór Jósefsson. 23. í’orvarður Þorvarðarson. andi »Templars«, fyrst einn (árið 1900), og síðar í félagi með mér og Guðm. Gamalíelssyni, árin 1904—1907. Auk þessa hefir hann starfað mjög að Reglumálum, og vinst honum vel, því hann er fastur fyrir, einarður, fylginn sér og góður ræðumaður. Eg hefi margoft unnið með honum, og mér aldrei fallið samvinna betur við aðra. Öll þessi ár var Jónas Hdgason, organleikari, fyrrum stórtemplar. Var hann einkar trúr og áhugasamur templ- ar, er vildi vinna stúku sinni gagn, og málefninu í heild sinni. Og ekki man ég eftir þeim fundi í »Verðandi«, þar sem við Jónas vorum meðlimir, að hann vantaði á fund. Væri vel, ef ís- lendingar ættu marga menn sem Jónas var. Blaðinu var haldið áfram í sama formi og verið hafði; að- eins var breytt um nafn á því, og það nefnt »HeimilisblaUi)«. Komu út af þvi 2 árgangar og 1 tölubl. af 3. ári, og var Björn

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.