Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Side 52

Eimreiðin - 01.09.1915, Side 52
208 fengið; en ég hefi enga trú á því. En það er sjálfsagt að láta þau standa óhreyfð í ein 30—40 ár, til þess að fá fullkomna reynslu. Nýja kynslóðin á að dæma þau, en við ekki.« Til- greini ég þessi orð hans hér, af því ég veit, að þetta var skoð- un hans á málinu, og hann mun hafa verið einn færasti stjórn- málamaður Islands á þeim árum. Pað urðu langar umræður um málið í neðri deild, og mátti heita, að fáir væru þeir, er ekki lögðu þar orð í belg. Hannes Hafstein talaði sérstaklega hart á móti frumvarpinu, en Jón bæjarfógeti Magnússon, er verið hefir flokksmaður hans, tók þá svari þess á móti flokksforingja sínum. Hefir J. Magn. ávalt verið fylgj- andi templurum og stutt þá með ráði og dáð meira en flestir aðrir. Var málið afgreitt til Efrideildar, og þar var 5 manna nefnd sett í málið. Pað urðu þeir Sigurður Hjörleifsson, Jósef Björnsson, skóla- kennari á Hólum, Lárus H. Bjarna- son prófessor, Ari Jónsson sýslu- maður og Stefán Stefánsson skóla- meistari, og var nefndin þar öll með lögunum, nema Stefán Stef- ánsson, er vildi láta fella þau. Allir þessir menn eru góðir ræðu- menn, og varð því hörð glíma í deildinni, einkum vegna þess, að liðsmunur var ekki mikili. Voru gerðar þar allmiklar breytingar á lögunum, og þær sumar til bóta, en sumar til spillis. Stærsta breytingin var sú, að vínsölubannið kom ekki til framkvæmda, fyr en 1. jan. 1915, en aðflutningsbannið aftur 1. jan. 1912. Loks var frumvarpið samþykt þar með 8 atkv. gegn 5, og sent Neðrideild, er samþykti það með 18 atkv. gegn 6. Að bannlög- in náðu höfn, má fyrst og fremst þakka ötulli framgöngu Björns Jónssonar og Björns Þorlákssonar, auk fjölda margra annarra, er þá aðstoðuðu, en hér yrði oflangt upp að telja. En þrátt fyrir þeirra góðu hæfileika og einbeitt starf, tel ég tvísýnt, að þau hefðu ekki strandað í Efrideild, hefði ekki komið hjálp úr ó- væntri átt, nefnilega frá Lárusi H. Bjarnason. Hann var einn af

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.