Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Síða 69

Eimreiðin - 01.09.1915, Síða 69
225 fróðleikur í slíku. Bogi Th. Melsteð ritar grein um þjóðartilfinn- ing íslendinga á lýðveldistímanum. Fyrirsögnin er ekki sem fimlegast orðuð: »Töldu íslendingar sig á dögum þjóðveldisins vera Norð- menn?« En það skiftir litlu. Höf. sýnir fram á það með glöggum og gildum rökum, að Islendingar kölluðu sig snemma á lýðveldistím- anum sérstaka þjóð, töldu sig ekki norska. Merkilegt gagn því til sönnunar er það, að Grágás talar um ivdra landa« eða 'nlanda vdrat, er hún kveður eitthvað á um dvöl íslendinga í útlöndum. Sama má segja um þessi orð Ara fróða um Ólaf Tryggvason, að hann »ætlaþi at láta meiþa eða drepa ossa landa fyrer, þá es þar váru austr«. Sigfús Blöndal bókavörður lætur prenta hér kafla úr Víð- ferlissögu Eiríks nokkurs Björnssonar og ritar lítið eitt um hana. Eiríkur þessi var Húnvetningur og var uppi á 18. öld. Hann fór ungur utan og lagði stund á smíðar. Gerðist hann skipssmiður, og þannig atvikaðist það, að hann fór víða um lönd og álfur, fyrst til Kina og aðra ferð til Bengal. Hefir hann ritað um þessar ferðir sínar og segir þar frá skringilegum háttum og siðvenjum á skringilegu máli. Hann segir rækilega og rólega frá því, er bar fyrir augu og eyru, og sver sig í því í ættina við söguhöfunda vora hina fornu, að hann fæst ekki við neinar heimspekilegar hugleiðingar, leiðir engar kenningar af því, er hann segir frá. Hann leggur einkum hug á að kynna sér trúarbrögð þjóða þeirra, er hann kom til, virðist trúmaður, enda var hann prestssonur. — Það er nógu gaman að sjá, að á þeim miklu eymdartímum þjóðar vorrar, sem hann lifði á, áttum vér þó menn, er hleypt gátu heimdraganum og þótti gaman af að taka sem bezt eftir því, sem þeir sáu nýstárlegt á slíkum langferðum. Mest þykir mér þó varið í ritgerðir þeirra Björns Ólsens og Valtýs Guðmundssonar, mestur vlsinda-bragur á þeim. Próf. Ólsen ritar um Stjörnu-Odda og Oddatölu, smárit eitt, er svo nefnist. f’essi Stjörnu-Oddi hefir verið merkilegasti maður, var gæddur fágætum eiginleika einum, því að það er haft fyrir satt, að hann hafi aldrei logið. Var það venja hans, að ganga út um nætur og hyggja að stjörnum, líkt og sagan segir um Einar Þveræing. Við hann er kend Oddatala, er próf. Ólsen ritar hér um, og hefir rann- sakað með aðstoð Eiríks Briems. Kemur það nú upp úr kafinu, að greinarkorn Odda er mun merkilegra, en vísindamönnum virðist hafa verið ljóst. Finnur Jónsson drepur aðeins lltillega á það í Bókmenta- sögu sinni hinni miklu, en kveður þó svo að orði um það, að reikn- ingar þess séu allnákvæmir (»denne Beregning skal være npjagtig nok«). Skiftist það í þijá kafla. Fyrsti er um sólstöður, hvenær þær séu, annar kafli um hækkun sólar á lofti frá vetrarsólstöðum til sumarsólstaðna, og þriðji er um það, í hvaða átt dagur komi upp og setjist á ýmsum tímum árs, Reikningarnir í tveim fyrstu köflunum eru gerðir með allmikilli nákvæmni, eins og F. J. segir, en Ólsen treystist ekki til að skera úr, hvort þeir séu gerðir af Odda sjálfum, eða hvort hann styðst við athuganir sjálfs sín. Öðru máli er að gegna með þriðja kafla. Eirikur Briem hefir rannsakað þessar athug- anir og gert ráð fyrir því, að þær hafi verið gerðar um miðbik 12

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.