Eimreiðin - 01.05.1921, Blaðsíða 20
148
HESTAVÍSUR
(EIMREIÐIN
Pótt haglið dynji hart á kinn,
og halli skömmum degi,
kvíði’ eg ei, pvi klárinn minn
kennir alla vegi.
Eina vísu kann eg, skagflrska að sögn, í sama anda:
Áfram veginn vonda’ eg held
vill hann þegi skána.
E*ótt halli degi’ og komi kveld
kvíði’ eg eigi á Grána.
Höfundinn þekki eg ekki, en vitað hefir hann hvað
Grána mátti bjóða og er drjúgur yfir.
En það eru fleiri, en þessi Skagfirðingur, sem drjúgir
eru yfir ratvísi hestsins og dugnaði hans. Að minsta kosti
kennir hins sama hjá Sunnlendingnum, sem kvað um
Glám:
Mesta gull í myrkri’ og ám,
mjúkt á lullar grundum.
Einatt sullast eg á Glám
og hálffullur stundum.
Þenna höfund kann eg heldur ekki að nefna, en fullyrt
er að vísan muni kveðin vera hér á Suðurlandi. Og þó
að einhverjum hárfínum og tilfinninganæmum bindindis-
postula finnist hún lítt frambærileg, þá getum við að
minsta kosti sætt okkur við hana, sem þorum að hugsa
um ástandið eins og það var, þó að við séum uppi á
þessum »síðustu og verstu vatnsblöndu-dögum«. Höfund-
urinn hefir vitanlega verið hálffullur, eins og hann segir,
og það er ástæðulaust að fara að gera rekistefnu út af
því nú, og hann hefir liklega verið á heimleið úr kaup-
staðnum með kútholuna sína. Það er orðið svo sjaldgæft
að sjá þá tvímenna hagyrðinginn og Bakkus, að mér finst
ekki nema réttmætt að minningunni um þá sé á lofti
haldið.
Það er misjafnt hvað reiðhestarnir endast vel. Sumir
eldast fyrir tímann, fella af áður en þeir komast á elli-
árin, stirðna upp og verða að eins svipur hjá sjón, móti
því sem þeir voru, þegar þeir léku á fyrri kostum sínum.