Eimreiðin - 01.05.1921, Blaðsíða 122
250
FRESKÓ
[ElMREIÐÍN
til min. Hví viljið þér ekki segja mér það sjálfur? — Eg
hirði ekkert um það, hvað aðrir segja; eg hirði ekki um
neitt — nema yður. — Við gætum verið svo sæl saman,
ef þér væruð ekki svona drambsamur!«
Þá misti eg valdið yfir sjálfum mér. Eg féll á kné fyrir
henni, og tók á móti kossinum af vörum hennar. Dálít-
illi stundu síðar sagði eg henni upp alla söguna, og sýndi
henni öll bréfin. Hún gerði ekkert úr því. Og hvað gerir
það líka til nú, þegar alt mitt er hennar og alt hennar
mitt. Látum heiminn segja hvað hann vilL Látum heim-
inn segja, að hún sé göfugasta konan, sem til er. Þá
segir hann í eitt skifti satt!«
Charterys greifinna, Milton Ernest, til síra Eccelino
Ferraris, Florinella:
»Mér finst eg strax vera farin að bera ást til yðar!
Komið til okkar um páskana. Hann ætlar að kaupa
hallarrústirnar hjá Florinella og láta endurreisa höllina,
svo að við getum stundum átt þar heima nálægt yður.
Hann hefir sagt mér, að yður hafi oft þótt sárt, að það
skyldi falla í rústir«.
Ekkjufrú Cairuwrath til Llaududno lávarðar, White
Club, London:
»Forsjóninni hefir þóknast að afstýra stóru hneykslis-
máli. Charterys lávarður — því að það er enginn vafi,
að þessi maður er Cbarterys lávarður, eg kannast svo vel
við ættarmótið — snýst vel í þessu máli, því að hann
vill ekki hafa, að sannleikurinn sé gerður heyrinkunnur.
Hann segist gjarna vilja, að heimurinn skoði greifinn-
una sem velgerðamann hans.
Auðvitað gerir þetta heldur ekki verulega til, þvi að
elsti sonur hennar hlýtur jafnt fyrir þvi, að erfa nafnið
og eignirnar! Mér þykir vænt um, að það skuli ekki þurfa
að verða hávaði út af þessu. En þetta sá eg undir eins.
Þó að nafn hans væri ókunnugt og alt sýndist benda i
aðra átt, þá sá eg strax að þessi málari mundi vera af